149. löggjafarþing — 119. fundur,  7. júní 2019.

Höfðaborgarsamningurinn um alþjóðleg tryggingarréttindi í hreyfanlegum búnaði og bókun um búnað loftfara.

415. mál
[10:01]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Páll Magnússon) (S):

Virðulegi forseti. Ég flyt hér nefndarálit með breytingartillögu meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarp til laga um Höfðaborgarsamninginn svokallaðan um alþjóðleg tryggingarréttindi í hreyfanlegum búnaði og bókun um búnað loftfara. Þetta er á þskj. 1627, mál nr. 415.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bryndísi Helgadóttur og Þorvald Heiðar Þorsteinsson frá dómsmálaráðuneyti, Ástríði Scheving Thorsteinsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, Karl Alvarsson og Kolbrúnu Söru Másdóttur frá Isavia ohf., Kristínu Helgu Markúsdóttur og Sigrúnu Henríettu Kristjánsdóttur frá Samgöngustofu og Bryndísi Bachmann frá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Nefndinni barst sömuleiðis umsögn frá Isavia.

Meginmarkmiðið með Höfðaborgarsamningnum er að auðvelda fjármögnun viðskipta milli landa með hreyfanlegan búnað, eins og það heitir. Samningurinn barst reyndar í tal í tengslum við fræga og enn umdeilda kyrrsetningu á flugvél WOW air í Keflavík fyrir skemmstu. Þessi samningur hefur sem sagt ekki enn öðlast lagagildi á Íslandi en gert er ráð fyrir því með þessu frumvarpi að svo verði.

Með frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að fullgilda af Íslands hálfu Höfðaborgarsamninginn um alþjóðleg tryggingarréttindi í hreyfanlegum búnaði og bókun um búnað loftfara, eins og málið heitir. Í frumvarpinu er jafnframt lagt til að ákvæði samningsins um búnað loftfara sem honum fylgir skuli hafa lagagildi hér á landi í samræmi við þær yfirlýsingar sem Ísland gerir samkvæmt samningnum. Hins vegar er ekki ætlunin að breyta núgildandi reglum um skráningu réttinda í loftförum, þ.e. að því marki sem slík réttindi falla utan gildissviðs laganna.

Ég ætla ekki að lesa upp allt nefndarálitið um innleiðingu og gildistöku og aðlaganir að þessum títtnefnda samningi eða lög um loftferðir. Ég vísa í nefndarálitið hvað það varðar. Ég vil þó taka fram að við meðferð málsins fyrir nefndinni var nokkuð rætt um ávinning flugrekenda á Íslandi ef Ísland gerist aðili að þessum samningi. Samningurinn mun að þeirra mati og að allra mati sem að þessu hafa komið að öllum líkindum minnka kostnað íslenskra flugrekenda við kaup á flugvélum og ekki auka útgjöld ríkisins. Auk þess kemur fram að flugrekendur hafa lýst því yfir að aðild Íslands að samningnum muni af þessum sökum hafa umtalsverð jákvæð áhrif á fjármögnunarkjör þeirra við kaup á loftförum og loftfarshlutum sem undir hann falla.

Flugrekendur lýstu yfir eindregnum stuðningi við að frumvarpið næði fram að ganga þegar nefndin óskaði eftir afstöðu þeirra til þess enda væri það til þess fallið að bæta kjör íslenskra flugrekenda við fjármögnun loftfara og loftfarshluta. Meiri hlutinn tekur undir það að frumvarpið feli í sér umræddan ávinning.

Nefndin leggur til minni háttar lagfæringar á tilvísunum í 2., 8. og 9. gr. frumvarpsins sem og orðalagsbreytingar á 1., 3. og 12. gr. Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem ég nefndi og er að finna í þingskjalinu.

Anna Kolbrún Árnadóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins, Jón Steindór Valdimarsson var sömuleiðis fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

Undir nefndarálitið rita sá sem hér stendur, Páll Magnússon, Andrés Ingi Jónsson, Birgir Ármannsson, Guðmundur Andri Thorsson, Halla Gunnarsdóttir, Hjálmar Bogi Hafliðason og Jón Steindór Valdimarsson, með fyrrgreindum fyrirvara.