149. löggjafarþing — 119. fundur,  7. júní 2019.

vestnorrænt samstarf á sviði íþrótta barna og unglinga.

462. mál
[11:56]
Horfa

Silja Dögg Gunnarsdóttir (F):

Virðulegur forseti. Ég kem sérstaklega upp til að taka það fram að ég er sammála þessu nefndaráliti. Svo illa vildi til að ég var fjarstödd þegar málið var afgreitt frá nefndinni en þetta er mjög gott mál og greinargerðin sem fylgir undirstrikar einnig það sem skiptir máli.

Ég vil kannski bæta við, umfram hana, að með því að bjóða íþróttafólki frá Grænlandi og Færeyjum að taka þátt í mótum sem haldin eru á Íslandi, sem og mögulega stofna til vestnorrænna íþróttamóta sem haldin yrðu í löndunum til skiptis, stuðlum við að því að iðkendur, þjálfarar og aðrir sem taka þátt, og náttúrlega foreldrar barnanna, kynnist innbyrðis. Það er það sem skiptir máli þegar við erum að tala um að efla tengsl landa, hin persónulega tenging, vinátta einstaklinga.

Mér finnst oft að margir hér á landi þekki ekki Færeyjar og Grænland nægilega vel miðað við að þetta eru góðir nágrannar okkar og eru ekki svo langt í burtu frá okkur. Einhvern veginn eru þessi lönd okkur sumum kannski svolítið fjarlæg, sem er miður.

Með þessu fá íslensk ungmenni, og grænlensk og færeysk ungmenni á móti, tækifæri til að heimsækja nágranna sína, kynnast og mynda tengsl sem vonandi lifa með þeim alla tíð. Þetta er gott mál og ég er einnig ánægð með það sem fram kemur neðst í nefndarálitinu þar sem vakin er athygli á hinu góða starfi Hróksins sem hefur unnið að skákkennslu á Grænlandi um árabil. Einnig er sundkennsla grænlenskra barna á Íslandi nefnd. Það var gott að undirstrika þetta í álitinu og ég tek undir að hvort tveggja má styrkja enn frekar.

Ég þakka nefndinni fyrir góða vinnu og tek undir álitið eins og það stendur.