149. löggjafarþing — 119. fundur,  7. júní 2019.

öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.

416. mál
[14:28]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Ég er áheyrnarfulltrúi í umhverfis- og samgöngunefnd og er þar af leiðandi ekki með minnihlutaálit en mig langaði til að koma með nokkrar athugasemdir um meirihlutaálitið og frumvarpið yfirleitt.

Núverandi frumvarp er búið að ganga í gegnum þó nokkurt ferli. Eins og það var í samráðsgátt stjórnvalda gekk það þó nokkuð langt. En gerðar voru miklar og góðar breytingar á því áður en það kom til þingsins. Einnig eru breytingartillögur nefndarinnar mjög góðar, gera málið allt mun nytsamlegra, ég get orðað það þannig. Þar er útskýrt betur um aðkomu mismunandi aðila, samráð við þá sem nauðsynlegt er, t.d. hvað varðar mikilvæga innviði, hvað er skilgreint sem mikilvægir innviðir því að auknar kröfur eru á þá aðila samkvæmt frumvarpinu og það er sérstaklega tilgreint að þá þurfi samráð við þá um hvort þeir séu skilgreindir mikilvægir innviðir eða ekki.

Til dæmis kom athugasemd um að svokallaður RIX, alla vega ein útgáfa af honum á Íslandi sem er kallaður Rixinn, væri mögulegt dæmi um mikilvæga innviði. Það var ekki alveg skýrt í frumvarpinu hvort það væri eða ekki og athugasemdir komu um að t.d. slíkir innviðir væru alls ekki mikilvægir innviðir því að hægt væri að fjarlægja hann alveg og það myndi ekki breyta neinu í virkni internetsins eða neinu svoleiðis. Þetta er bara ákveðin hagræðing að vera með þessa þjónustu. Mér finnst ekki nægilega skýrt tekið undir það sjónarmið í nefndarálitinu, ég vildi bara koma því að.

Farið er betur yfir aðgengi netöryggissveitar að upplýsingum og ógn; aftur meira samráð. Þetta er allt svona í áttina að betri nálgun, en frumvarpið var upprunalega í samráðsgáttinni, og í betri átt en Póst- og fjarskiptastofnun vill fara í þessu máli, sem er rosalega gerræðislegt og ég notaði dálítið stór orð um það í upphafi í 1. umr. um þetta mál. Í áttina að útgáfunni eins og hún var í samráðsgáttinni og tillögum Póst- og fjarskiptastofnunar eiga þau orð við þær útgáfur. Þetta er komið langt, langt frá því sem það var og er mun betra núna.

Helsta athugasemdin sem ég geri við frumvarpið og ástæðan fyrir því að ég get ekki stutt það, ég krota ekki undir þetta sem áheyrnarfulltrúi, er kaflinn um kostnaðinn og gildistökuna, síðasti kaflinn. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir kostnaði upp á rúmlega hálfan milljarð á ári á næstu árum. Það er ekkert frekar útskýrt af hverju kostnaðurinn er svona gríðarlega mikill. Þegar ég bað um að fá útskýringar á þeim kostnaði fékk ég engin svör. Maður getur ímyndað sér að kaupa þurfi búnað hér og þar og þetta gæti vel verið sá hluti sem búist er við, sem sagt búnaður fyrir þann hluta hvað varðar opinberar stofnanir. Það getur vel verið, ég veit það ekki af því að ég fékk ekki svör um það. Í nefndarálitinu er sagt, með leyfi forseta:

„Í ljósi þess að verkefnið er nýtt og útfærsla á fyrirkomulagi samstarfs lykilaðila getur haft áhrif á eftirlitskostnað beinir nefndin því til ráðuneytisins að kostnaðurinn verði endurmetinn í aðdraganda gildistöku laganna.“

Ég geri athugasemd við svona vinnubrögð, að við samþykkjum dálítið opinn tékka hvað þetta varðar þó að þetta komi auðvitað í fjárlögum seinna þar sem við þurfum að samþykkja þetta aftur, en við vitum í rauninni ekki um fjárhagslegt umfang þessara laga og hvaða aðra valkosti við höfum kannski til að hafa einhver áhrif á þann kostnað. Þarna er verið að skrifa opinn tékka upp á það hversu dýr útfærsla er valin. Rétt vinnubrögð í þessu væru að fá kostnaðarmatið og útskýringarnar á því fyrst áður en við förum í að samþykkja frumvarpið.

Þar er líka sagt, með leyfi forseta, „… að gera þurfi ráð fyrir kostnaði vegna innleiðingar laganna í fjármálaáætlun og fjárlögum næsta árs, […] að gildistöku laganna verði frestað til 1. september 2020.“

Vandamálið við þetta er að við erum núna að fjalla um fjármálaáætlun áranna 2020 og plús, 2020–2024. Það er á árinu 2020 sem kemur væntanlega til einhvers kostnaðar, en ekki er gert ráð fyrir því í núverandi fjármálaáætlun, þar af leiðandi ekki í fjárlögum fyrir næsta ár miðað við þá fjármálaáætlun. Það eru fjórir mánuðir þarna í lokin, kannski leggst enginn kostnaður á þá fjóra mánuði, það má vel vera ef það myndi gera verkefnið skilvirkara og koma því í gang á réttum tíma, eða fyrr, og ábatinn af því hæfist þá strax, en ekki er hægt að gera það af því að ekki er gert ráð fyrir því í fjárlögum, og þá er það náttúrlega ákveðið tap hvað það varðar.

Niðurstaða frumvarpsins er nokkuð góð. Það á eftir að koma reynsla á þetta samstarf, sem er dálítið stórt spurningarmerki um hversu mikið samstarfið verður, en það er náttúrlega bara aðhaldsatriði sem ég vonast til að þeir aðilar sem koma að samkomulaginu við stjórnvöld upplýsi Alþingi um ef þeir telja það ekki vera samráð. Við þurfum tvímælalaust að hafa eitthvert eftirlit með því að verið sé að sinna þessu á þann hátt sem Alþingi er að gefa skilaboð um að í alvörunni sé samráð en ekki þvingað samráð eða eitthvað því um líkt. Það er eitthvað sem ég vona að gangi vel og að ég komi til með að heyra um að gangi vel. Út af kostnaðar- og gildistökunni finnst mér það einfaldlega bara röng vinnubrögð að fá greiningu eftir á og athuga eftir á af hverju kostnaður er og hvort hann sé eins og gert er ráð fyrir.

Mér finnst athugavert um kostnaðarmat í lögum eða frumvörpum, eins og lög um opinber fjármál gera ráð fyrir, þá byggir nefndarálitið út frá því að það sé mögulega rangt. Og þá spyr maður: Samkvæmt lögum um opinber fjármál: Er ekki eitthvert vandamál þar ef við getum ekki treyst á að kostnaðarmatið í frumvarpinu sé rétt? Mér finnst það vera ákveðinn galli gagnvart lögum um opinber fjármál sem eiga einmitt að tryggja þennan grundvöll, að við séum með upplýst samþykki um það hvaða áhrif þetta hafi á efnahag hins opinbera. 500 milljónir á ári eru enginn smápeningur, sérstaklega í ljósi þeirra aðstæðna sem við glímum við núna í endurskoðun fjármálastefnu og fjármálaáætlunar. Ef á að bæta við 500 milljónum á ári ofan á það, þá veit ég ekki hvað. Ég hefði því viljað sjá af hverju kostnaðurinn er og að aðrar útfærslur kæmu til að byrja með á meðan við erum að glíma við það ástand sem við erum í núna. Það eru skilaboð mín inn í þetta mál.