virðisaukaskattur.
Virðulegur forseti. Við greiðum nú atkvæði um að lækka virðisaukaskatt á getnaðarvarnir kvenna sem og túrvörur ýmiss konar. Með atkvæðagreiðslunni komumst við skrefi lengra í að gera þetta mikla réttlætis- og jafnréttismál að lögum á þessu þingi. Sem flutningsmaður gleðst ég að sjálfsögðu yfir þeim áfanga verði niðurstaða atkvæðagreiðslunnar sú sem ég hef rökstuddan grun um að hún verði.
Ég þakka Kvenréttindafélagi Íslands, félaginu Femínísk fjármál, hjúkrunarfræðingnum Aðalsteini Baldurssyni og Femínistafélagi Háskóla Íslands fyrir að senda inn jákvæðar og uppbyggjandi umsagnir um þetta mál á þessu þingi. Ég vil þakka síðastnefnda umsagnaraðilanum, þ.e. Femínistafélagi HÍ, alveg sérstaklega fyrir að hafa haldið málfund með fulltrúum allra flokka þar sem sérstök áhersla var lögð á þetta mál og framgang þess á þinginu. Ég efast ekki um að sá fundur hafi haft jákvæð áhrif á stöðu þessa máls í dag. Þar að auki á Oktavía Hrund Jónsdóttir, varaþingkona Pírata, þakkir skildar fyrir að hafa fyrst lagt málið fram af hálfu Pírata sem og hv. þm. Smári McCarthy fyrir að hafa unnið frumvarpið með henni (Forseti hringir.) og unnið málið í hv. efnahags- og viðskiptanefnd sem auðvitað á einnig að þakka fyrir góða vinnu í þessu máli.