upplýsingalög.
Forseti. Þar sem ég er nú svo gamall sem á grönum má sjá og treysti ekki á að ég muni eftir því við 3. umr. en mundi eftir því núna og er þannig gerður að ef ég man eftir einhverju þarf eiginlega að gera það strax kem ég hingað upp einfaldlega til að hrósa hv. þm. Jóni Þór Ólafssyni, framsögumanni málsins, fyrir að hafa haldið mjög vel utan um það. Ræðan sem hann hélt áðan sýnir einmitt árvekni hans í málinu, hvernig hann hefur vakað yfir því hvað þarf að gera til að koma því sem best áfram og ég vildi þakka fyrir þetta ef ég skyldi gleyma því við 3. umr. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)