149. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2019.

Frestun á skriflegum svörum.

[10:32]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá eftirfarandi ráðherrum þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum: Frá heilbrigðisráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 1481, um stuðning við foreldra barna með klofinn góm, frá Ásmundi Friðrikssyni; á þskj. 1521, um kostnað tiltekinna stofnana vegna kaupa og notkunar á Microsoft-hugbúnaði, frá Birni Leví Gunnarssyni; og á þskj. 1522, um auglýsingar á samfélagsmiðlum, frá Birni Leví Gunnarssyni. Frá utanríkisráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 1036, um áskrift að dagblöðum, tímaritum og öðrum miðlum, frá Birni Leví Gunnarssyni, og loks frá umhverfis- og auðlindaráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 1570, um útgjöld og notkun á almennum og sérsmíðuðum hugbúnaði hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess, frá Birni Leví Gunnarssyni.