niðurskurður til mennta- og menningarmála.
Virðulegi forseti. Hvað varðar háskólastigið hefur það hækkað á síðustu þremur árum á föstu verðlagi um 6,8%. Við höfum ekki séð svona mikla hækkun til framhaldsskólanna í mörg ár. Á næsta ári mun hækkunin halda áfram á hvern einasta nemanda. Það sem við erum að gera á framhaldsskólastiginu en hefur ekki verið gert áður er að við erum að forgangsraða í þágu verk- og starfsnáms. Við erum komin með nýja flokka, hvernig við setjum inn fjármuni og á alla þá flokka og hvern einasta nemanda er hækkun árið 2020.
Annað sem ég vil nefna, sem er auðvitað algerlega frábært og ég vona að þingheimur og hæstv. ráðherra geti fagnað með okkur í því, er að við höfum ráðist í aðgerðir í menntamálum er varða nýliðun kennara. Það hefur verið gríðarleg kennaraþörf og í fyrsta sinn erum við að fara eftir færnispá, þ.e. hver kennaraþörfin verður árið 2032. Skemmst er frá því að segja að ríkisstjórnin setti 250 milljónir í þennan málaflokk í ár. Og hvað er að gerast? 45% aukning nýskráningar í Háskóla Íslands. Við höfum ekki séð svona mikla aukningu líklega í áratugi. Það er alveg ljóst að ef við hlúum ekki að starfsumhverfi kennara og förum ekki í þessar aðgerðir verðum við ekki með framúrskarandi menntakerfi.
Næst vil ég nefna háskólann. Á síðustu þremur árum hefur háskólastigið hækkað um 10,2% á föstu verðlagi og hækkunin mun halda áfram á næstu árum. Svo er gaman frá því að segja að við erum búin að smíða nýtt stuðningskerfi fyrir námsmenn sem er með allt öðrum hætti en hefur verið gert áður og verða miklu meiri valmöguleikar, þannig kerfi að í stað þess að skulda í kringum 7 milljónir eftir fimm ára nám skulda menn í kringum 3,8 milljónir. Ég hlakka til að fara yfir það með þingheimi þegar ég kynni það frumvarp.