149. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2019.

niðurskurður til mennta- og menningarmála.

[11:00]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Herra forseti. Mér fannst ráðherrann eiginlega ekki svara þessu. Það er ágætt að vera metnaðarfullur í menntamálum en þegar kemur að fjármálunum erum við að fara aftur á bak. Heildarframlög til framhaldsskólanna verða lægri 2024 en 2019, við erum að fara niður. Svo koma breytingartillögur sem ríkisstjórnin kallar eftir að við samþykkjum og þá er beinlínis verið að lækka framlög til framhaldsskóla um 1,8 milljarða. Það var samkomulag um að svokallaðir styttingarpeningar ættu að haldast, það átti ekki að draga úr fjármunum til framhaldsskólanna. Síðan hafa þessi ráðherra og annar verið metnaðarfullir og ítrekað talað um menntasókn.

Háskólastigið fær 39 milljarða árið 2019 fyrir utan LÍN, en fær 40 milljarða 2024. Þetta er nánast sama upphæðin og ég sé ekki þá sókn sem ríkisstjórnin stærir sig af. Tölurnar ljúga ekki og þetta eru engin geimvísindi, herra forseti. Ég vil bara að ráðherrarnir lesi sín eigin excel-skjöl en það er kannski svolítið djúpt á þeim í ljósi þess að þessar vondu breytingartillögur eru á fylgiskjali 7. Sá grunur læðist að mér að hér hafi átt að lauma mjög vondum breytingartillögum (Forseti hringir.) í gegnum þingið á síðustu dögum þess. Það er ámælisvert, herra forseti.