149. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2019.

öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.

416. mál
[14:36]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er gott dæmi um að við þurfum að klára að framfylgja þingsályktunartillögu sem var samþykkt árið 2015 um tölvutæk skjöl því að hér er einmitt talað um að 2. mgr. 29. gr. falli brott en í upprunalega frumvarpinu ná greinarnar bara upp í 27. Það eru einhverjar breytingartillögur sem komu á milli 1. og 2. umr. og mig minnir að þær bæti við einhverjum greinum. Og þá veit ég ekkert hvaða grein er 29 núna og hver 2. mgr. er.

Þegar við fáum breytingartillögu svona seint í ferlinu vitum við almennt séð ekkert hvað er verið að fjalla um. Þetta er skortur á samhengi og við þurfum almennt séð að gera betur með slíkt. Mér þætti vænt um ef flutningsmaður gerði aðeins grein fyrir því nákvæmlega hver 2. mgr. 29. gr. er. Ég hef ekki hugmynd um það þrátt fyrir að ég sé í nefndinni.