öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. 29. gr. fjallar um gildistökuna og er lagatæknileg. Eins og ég sagði er í 4. gr. kveðið á um að ráðherra skuli tímanlega birta skrá yfir rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu og hins vegar vinna stefnu um net- og upplýsingaöryggi og skipa netöryggisráð. Þetta verður hvort tveggja gert fyrir gildistöku frumvarpsins þannig að í breytingartillögu nefndarinnar var ítrekað að þótt gildistökunni væri seinkað héldu þessar greinar gildi sínu. Í rauninni er verið að lagfæra orðalag á þessum tveimur greinum. Eða kannski er frekar hægt að segja að verið sé að skipta frumvarpinu upp og skýra það.