149. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2019.

umferðarlög.

219. mál
[15:22]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Hjálmaskyldan breyttist held ég oftar en einu sinni frá upphaflega frumvarpinu. Ég var nú að lýsa því yfir að ég væri ánægður með niðurstöðuna eins og hún er núna, þ.e. að miðað sé við þá sem eru yngri en 16 ára, ef ég hef áttað mig rétt á því. Ég held ég hafi tekið vel eftir á síðasta nefndarfundi. Ég er ánægður með þetta og var bara að lýsa yfir þeirri skoðun minni við hv. þingmann. Ég þakka hv. þm Birni Leví Gunnarssyni fyrir spurninguna.

Síðan var hann að tala um þvagsýni. Hann spurði hvort þau væru tekin úti á götu. Ég get upplýst hv. þingmann um að það er gert í sumum tilvikum, já.