umferðarlög.
Hæstv. forseti. Ég get upplýst hv. þm. Bergþór Ólason um að fullt af hættubrotum er refsivert í lögum, það að skapa hættu. Það leiddi ekki endilega til tjóns en það er ekkert nýtt, það eru hættubrot. Það verður þá að vera hættubrot í þessu með það að hafa neytt kannabis þó að virknin sé löngu horfin. Það er ekkert í blóðinu. Efnið er ekki virkt í viðkomandi og hefur þar af leiðandi ekki áhrif á aksturinn, en það finnst í þvagi vegna þess að niðurbrotsefnin eru svo lengi að fara. Það er bara þetta sem ég er að segja. Þetta er munurinn.
Það er alveg rétt þegar hv. þingmaður deilir við hv. þm. Helga Hrafn Gunnarsson, við getum ákveðið í lögum að gera refsivert að hafa neytt efna sem eru ekki farin úr þvagi. Ég er alveg sammála hv. þingmanni að það hefur ekkert með mannréttindi að gera, eins og hv. þm. Helgi Hrafn hélt fram. Það er tóm þvæla. (Forseti hringir.) En ég horfi á það svona að viðkomandi verður að vera óhæfur til aksturs, annars vil ég ekki refsa.