149. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2019.

umferðarlög.

219. mál
[16:08]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu. Mjög oft er ég sammála hv. þingmanni. Ég er hins vegar á aðeins öðrum stað í þessum hjálmum en margir aðrir af því að ég geri ekki alveg greinarmun á bílbeltum og hjálmi. Ég velti fyrir mér hvort maður sem þarf að skjótast út í búð og þarf að keyra 500 metra eigi ekki að vera í belti. Á ekki að vera með ljós á bifreiðinni ef maður þarf að fara stutt eða keyrir hægt? Ég hef ekki séð nein gögn sem benda til þess að það sé skynsamlegt. Ég man heldur ekki eftir því að lögð hafi verið fram gögn sem sýni að hjálmanotkun dragi úr áhuga á hjólreiðum. Hefur þingmaðurinn vitneskju um það? Maður er ekkert sætur með hjálm, ég geri mér grein fyrir því, en þetta er ekki fegurðarsamkeppni.

Mig minnir hins vegar að í gögnunum megi finna upplýsingar frá Danmörku sem sýna að það er fylgni milli hjálmanotkunar og slysa, þ.e. að alvarlegum slysum fækkar þegar reiðhjólamenn noti hjálma. Ég skil frelsishugsunina hjá þingmanninum en við erum (Forseti hringir.) að hafa vit fyrir fólki eins og með bifreiðar. Er grundvallarmunur þarna á?