149. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2019.

loftslagsmál.

758. mál
[16:24]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Rósa Björk Brynjólfsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég flyt hér nefndarálit um frumvarp til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál frá árinu 2012, með síðari breytingum, sem lýtur að styrkingu á stjórnsýslu og umgjörð. Almennt séð fagnar meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar þessu frumvarpi og telur það nauðsynlegt skref af mörgum sem taka verður svo að markmiðum Íslands í loftslagsmálum til ársins 2030 verði náð.

Ísland er eins og kunnugt er, skuldbundið af alþjóðasamningum til að draga úr útblæstri til að sporna við loftslagsbreytingum. Þeirra helstir eru Parísarsamningurinn sem samþykktur var árið 2015 og Kyoto-bókunin. Þá er Ísland skuldbundið sem aðildarríki Evrópuráðsins til að fara að tilmælum Evrópuráðsins og Evrópuráðsþingsins. Evrópuráðsþingið hefur margsinnis samþykkt að aðildarríki verði að fara í markvissar og umfangsmeiri aðgerðir til að draga úr mengun og bæta loftgæði til að tryggja íbúum borga og sveita þau grundvallarréttindi sem felast í betri loftgæðum, nú síðast með tilmælum stjórnarnefndar Evrópuráðsþingsins 23. maí 2019.

Það er skemmst frá því að segja að loftmengun er talin ein helsta heilsufarsógn samtímans samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni en 4,2 milljónir manna deyja á ári hverju beinlínis vegna loftmengunar. Þar af er talið að 753.000 manns láti lífið í Evrópu einni samkvæmt nýjustu tölum stofnunarinnar sem líkt og Evrópuráðsþingið hefur skilgreint hreint loft sem grundvallarmannréttindi. Hvað mengun varðar er Ísland engin undantekning en samkvæmt skýrslu Hagstofunnar var Ísland það ríki innan ESB og EFTA sem var með mesta losun koltvísýrings frá hagkerfi á einstakling 2016. Því er ljóst, herra forseti, að aðgerða er þörf, róttækra aðgerða, og er frumvarp þetta nauðsynlegt skref í þá átt.

Mig langar til þess að reifa hér þær breytingartillögur sem meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar kom sér saman um að gera á frumvarpinu og þær áherslur sem nefndin kom sér líka saman um að leggja á við afgreiðslu málsins.

Í fyrsta lagi er það kolefnisjöfnun. Með 1. gr. frumvarpsins er skilgreiningu á hugtakinu kolefnisjöfnun bætt við 3. gr. laga um loftslagsmál. Á fundum nefndarinnar var bent á að markmið aðgerða í loftslagsmálum væri annars vegar að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og hins vegar að jafna fyrir losun sem ekki er hægt að fyrirbyggja að fullu. Skilgreiningin væri óskýr að þessu leyti og blandaði í raun markmiðunum saman í eitt. Meiri hlutinn tók undir framangreind sjónarmið og leggur til breytingu á orðalagi skilgreiningar kolefnisjöfnunar í þá veru að skýra hugtakið og samræma í takt við loftslagsstefnu Stjórnarráðsins.

Í öðru lagi er það aðgerðaáætlun. Með a-lið 2. gr. er ákvæði laga um loftslagsmál uppfært með það að markmiði að styrkja áætlunina sem stjórntæki til að ná markmiðum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Að mati meiri hlutans í umhverfis- og samgöngunefnd var aðgerðaáætlun í loftslagsmálum 2018–2030, sem kynnt var í september síðastliðnum góð byrjun þótt þar hafi vantað töluleg markmið. Aðgerðaáætlunin hafi hins vegar komið vinnu af stað og ýtt undir umræðu og orðið hluti af vitundarvakningu í loftslagsmálum hér á landi.

Í 1. mgr. málsgrein ákvæðisins kemur fram að ráðherra láti gera aðgerðaáætlun í loftslagsmálum þar sem setja skuli fram tillögur að aðgerðum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka kolefnisbindingu hér á landi. Fram kom fyrir nefndinni gagnrýni á orðalag 1. mgr. þess efnis að óljóst væri hver ætti að bregðast við þessum tillögum og aðgerðum. Meiri hlutinn tók undir að orðalag málsgreinarinnar væri ekki nógu skýrt að þessu leyti og telur rétt að í aðgerðaáætlun séu settar fram aðgerðir í stað tillagna að aðgerðum. Að auki leggur meiri hlutinn í umhverfis- og samgöngunefnd til breytingu á 1. mgr. 2. gr. þess efnis að í aðgerðaáætlun skuli settar fram aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka kolefnisbindingu hér á landi í samvinnu við hagaðila og sérfræðinga.

Í þriðja lagi eru það ákvæði um loftslagsráð. Í a-lið 3. gr. frumvarpsins er að finna nýtt ákvæði um loftslagsráð, hlutverk þess og verkefni. Ráðið hefur eins og kunnugt er tekið til starfa en það var skipað í samræmi við þingsályktun nr. 46/145. Verkefni ráðsins eru skilgreind í 1.– 6. tölulið 2. mgr. en eitt þeirra er að miðla fræðslu og upplýsingum um loftslagsmál til almennings, fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga.

Fram kom við gestakomur í nefndinni að orðalag ákvæðisins mætti skilja sem svo að loftslagsráð myndi standa fyrir útgáfu efnis. Svo er ekki því að ýmsar stofnanir gera það og standa í útgáfu alls kyns upplýsinga og miðlun upplýsinga. Meiri hlutinn tók undir þau sjónarmið að þetta þyrfti að skýra og telur rétt að loftslagsráð hafi yfirsýn yfir miðlun fræðslu og upplýsinga en ábyrgð á þeirri miðlun sé áfram á hendi viðkomandi stofnana. Því leggur meiri hlutinn til breytingu þess efnis á 4. tölulið 2. mgr. 3. gr. Sambærileg gagnrýni kom einnig fram varðandi 5. tölulið. Réttara væri að stofnanir bæru ábyrgð á og gerðu tillögur að vöktun og rannsóknum sem tengjast loftslagsbreytingum en loftslagsráði væri falið það hlutverk að rýna þær tillögur. Meiri hlutinn tók undir þá gagnrýni og leggur til breytingu þess efnis á 5. tölulið.

Sömuleiðis ræddi nefndin töluvert um skipan í loftslagsráð og hvort kveða ætti sérstaklega á um það í lögum hverjir tilnefndu aðila í ráðið. Fram kom á fundum nefndarinnar að nauðsynlegt væri að þessu yrði haldið nokkuð opnu að ákveðnu leyti. Þetta svið, loftslagsmál, væri margbreytilegt og ýmsum breytum háð hvaða aðilar væru nauðsynlegir til setu í ráðinu á hverjum tíma. Hins vegar væri tryggt að í ráðinu ættu sæti fulltrúar ákveðinna sviða samfélagsins og meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið og telur jákvætt að í frumvarpinu sé gert ráð fyrir ákveðnum sveigjanleika við skipan í ráðið.

Þegar kemur að fulltrúum atvinnulífsins í loftslagsráði var bent á að þegar fjallað er um atvinnulífið þá sé bæði átt við samtök atvinnurekenda og samtök launafólks. Meiri hlutinn telur því brýnt að ráðherra taki mið af því við skipan í ráðið og þess gætt að fulltrúar beggja þessara ólíku hópa eigi þar sæti. Þá áréttar meiri hluti nefndarinnar jafnréttissjónarmið og mikilvægi þess við skipan í ráðið og að þeir aðilar sem taki sæti hafi reynslu eða þekkingu á loftslagsmálum, sviðum sem tengjast loftslagsmálum eða umhverfismálum.

Í fjórða lagi er það loftslagsstefna. Í b-lið 3. gr. frumvarpsins er kveðið á um loftslagsstefnu ríkisins en samkvæmt ákvæðinu er Stjórnarráði Íslands, stofnunum ríkis og fyrirtækjum í meirihlutaeigu ríkisins skylt að setja sér loftslagsstefnu. Rætt var um það á fundum nefndarinnar hvort það þætti nauðsynlegt að bæta þarna inn í sveitarfélögunum. Sveitarfélögin eru jú eitt mikilvægasta stjórnvaldsstigið hér á landi og samfélagsins og án þeirra vantar ansi mikið inn í aðgerðir til að sporna við loftslagsbreytingum.

Ákall um viðbrögð og aðgerðir í loftslagsmálum hefur sjaldan verið háværara en nú. Má þar t.d. nefna ítrekuð loftslagsverkföll ungs fólks víða um heim og hér á Austurvelli. Þá hafa þjóðþing Bretlands og Írlands lýst yfir neyðarástandi í loftslagsmálum sem og þing Skotlands og Wales, ásamt 19 sveitarfélögum í Ástralíu, borgarstjórn Brussel og 114 sveitarstjórnum í Bretlandi þegar þetta er talað. Ég efast ekki um, herra forseti, að sú tala sé síbreytileg og þeim sveitarfélögum og borgum fjölgi sem muni lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum sem hvetji viðkomandi stjórnvöld til að grípa til róttækari aðgerða en nú er.

Það er því ljóst, herra forseti, að Íslendingar, líkt og aðrar þjóðir, verða að hraða mjög aðgerðum til að vinna gegn loftslagsbreytingum og alvarlegum afleiðingum þeirra. Það er afskaplega brýnt að opinberar stofnanir á öllum stjórnsýslustigum leiði þá vegferð og séu samstiga í þeim efnum. Þar er sveitarstjórnarstigið ekki undanskilið og fagnar meiri hlutinn þeim mikilvægu skrefum sem stór og fjölmenn sveitarfélög hafa nú þegar stigið, t.d. Reykjavíkurborg sem setti sér loftslagsstefnu árið 2016 og önnur sveitarfélög sem hafa hafið vinnu við innleiðingu lofslagsáætlunar, líkt og Kópavogsbær og önnur sveitarfélög sem hafa lokið innleiðingu áætlunar. Að mati meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar er nauðsynlegt að sveitarfélögin verði virkir þátttakendur í aðgerðum í loftslagsmálum og því leggur meiri hlutinn til að sveitarfélögum verði einnig skylt að setja sér loftslagsstefnu líkt og Stjórnarráði Íslands, stofnunum ríkisins og fyrirtækjum í meirihlutaeigu ríkisins.

Að sama skapi gerir meiri hlutinn sér grein fyrir að gerð slíkrar stefnu kann að vera umfangsmikið verkefni fyrir fámennustu sveitarfélögin. Því bendir meiri hlutinn á að sveitarfélög, stór eða smá, geta sameinast um gerð loftslagsstefnu, m.a. með hliðsjón af hagkvæmnissjónarmiðum og að hægt verði að nýta þekkingu í loftslagsmálum þvert á sveitarfélög. Sömuleiðis er vert að geta þess og vekja athygli á því að Umhverfisstofnun mun aðstoða ríkisstofnanir við gerð og framkvæmd loftslagsstefnu og telur meiri hlutinn rétt að sveitarfélögin njóti þeirrar ráðgjafar líkt og aðrar opinberar stofnanir. Leggur meiri hlutinn til breytingartillögu þess efnis á 3. mgr. 3. gr.

Stjórnarráð Íslands hefur þegar sett sér loftslagsstefnu en eitt af markmiðum hennar er að vera fyrirmynd fyrir aðrar ríkisstofnanir og fyrirtæki og geta sveitarfélögin einnig litið til þeirrar áætlunargerðar við gerð sinnar eigin loftslagsstefnu. Sömuleiðis kom það fram fyrir nefndinni að nokkrar stofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins, á borð við stærsta orkufyrirtæki í ríkiseigu, Landsvirkjun, hafa nú þegar sett sér eða vinna ötullega að gerð umhverfis- og loftslagsstefnu. Það kom fram fyrir nefndinni að innan þeirra raða er gríðarlegur vilji til þess að miðla þekkingu og reynslu til annarra varðandi gerð slíkrar stefnu og það er vel. Það var jákvætt að finna þennan samhug hjá gestum sem fyrir nefndina komu í því að vilja deila með öðrum þegar kemur að reynslu við áætlanagerð og að deila því með öðrum stofnunum og sveitarfélögum sömuleiðis. Því hvetur meiri hlutinn til samvinnu meðal þeirra aðila sem undir lögin heyra svo öll sú þekking og reynsla sem þegar er fyrir hendi nýtist sem best og hægt verði að ráðast sem fyrst í markvissar aðgerðir til að sporna við loftslagsbreytingum. Meiri hlutinn leggur áherslu á að við gerð loftslagsstefnu sveitarfélaga verði stefnt að því að sú stefna verði fullbúin fyrir árslok 2021.

Ég vil af þessu tilefni benda á og þakka fyrir hversu mikill velvilji er á meðal sveitarfélaga til þess að axla ábyrgð þegar kemur að aðgerðum til að sporna við loftslagsbreytingum. Velviljann má finna beint hjá sveitarstjórnarfólki sem og hjá forystufólki Sambands íslenskra sveitarfélaga, og það er vel. Það er framsýni og réttsýni og ég vil hrósa Sambandi íslenskra sveitarfélaga fyrir þá sýn í loftslagsmálum og þá ábyrgð að vilja taka á sig fleiri byrðar og deila þekkingu með öðrum.

Í fimmta lagi er í c-lið 3. gr. mælt fyrir um gerð skýrslna um áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi. Meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar fagnar því að gerð slíkra skýrslna verði lögbundin enda eru reglubundnar skýrslur sérfræðinga á þessu sviði nauðsynlegar í þeim aðgerðum og aðlögun sem þarf að vinna að vegna loftslagsbreytinga. Við þurfum að vita nákvæmlega hvaða tölur við erum að vinna með, hvaða breytingar við erum að sjá, hvaða nákvæmu vitneskju við erum að vinna með. Á þetta hefur skort í loftslagsmálum hér á landi og við þurfum að gera betur þegar kemur að því að afla gagna og nota okkur þessi gögn og tölulegar upplýsingar til þess að taka skýrar ákvarðanir. Þess vegna leggur meiri hlutinn áherslu á að þessum reglubundnu skýrslum sé fylgt strax eftir, ekki bara látnar liggja einhvers staðar heldur þeim sé fylgt eftir.

Það er líka ákaflega mikilvægt að við höldum vörð um það hér á þingi að það séu reglubundnar umræður í þessum sal um loftslagsmálin, um þá miklu vá sem steðjar að okkur sem samfélagi og að okkur í samfélagi þjóðanna. Því er brýnt að mati meiri hlutans að ráðherra umhverfismála flytji Alþingi skýrslu um stöðu loftslagsmála reglulega þar sem m.a. skal gera grein fyrir niðurstöðum þeirra vísindalegu skýrslna sem hann lætur vinna um áhrif loftslagsbreytinga. Ég tel þetta vera gríðarlega jákvætt vegna þess að við í þingsal þurfum að eiga oftar umræðu um akkúrat loftslagsmálin. Við þurfum að hefja þessi mál ofar á mikilvægislistann okkar, herra forseti. Vonandi tökumst við sem minnst á en við þurfum að ræða þessi mál af dýpt og framsýni.

Í fimmta lagi er það loftslagssjóður. Í 5. gr. frumvarpsins er kveðið á um loftslagssjóð og um hlutverk hans og með ákvæðinu í lagafrumvarpinu er hlutverk sjóðsins þrengt frá því sem nú er og lagt til að hlutverk hans verði að styðja við nýsköpun á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga. Meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar telur að þetta ákvæði sé af hinu góða. Það sé gott að verið sé að afmarka hlutverk sjóðsins með skýrum hætti og sérstaklega sé lögð áhersla á nýsköpun frekar en fjármögnun annarra verkefna og hvetja þar með um leið til nýsköpunar þegar kemur að því að finna lausnir við þeim bráðavanda sem loftslagsbreytingar eru.

Loftslagsmál og aðgerðir vegna loftslagsbreytinga er gríðarstórt verkefni sem snertir á flestum sviðum samfélagsins. Að mati meiri hlutans er nauðsynlegt að fjármögnun verkefna á sviði loftslagsmála komi bæði frá hinu opinbera, sem fjárveitingar úr opinberum sjóðum eða fjárveiting samkvæmt fjárlögum, og atvinnulífinu. Til að mynda í því að styrkja rannsóknar- og þróunarstarf í tengslum við innleiðingu á nýjum loftslagsvænum tæknilausnum eða hönnun. Í 3. málslið 5. gr. kemur fram að þessir styrkir til nýsköpunarverkefna séu akkúrat ætlaðir til þess. Það var bent á að með orðalaginu væri ekki gert ráð fyrir fjármögnun rannsókna eða aðgerða vegna aðlögunar að loftslagsbreytingum en rétt væri að slíkar rannsóknir féllu einnig undir ákvæðið. Meiri hlutinn tók undir þau sjónarmið.

Að auki lagði meiri hlutinn til smávægilegar breytingar lagatæknilegs eðlis sem þarfnast ekki útskýringar.

Ég vil að lokum, herra forseti, leggja áherslu á hversu samstiga umhverfis- og samgöngunefnd var við afgreiðslu á þessu lagafrumvarpi. Ég vil líka þakka þann samhug og þann takt sem langflestir nefndarmenn gengu í þegar við í hv. nefnd lögðum til breytingartillögur við frumvarpið. Ég held að umhverfis- og samgöngunefnd hafi gert þetta frumvarp enn betra. Við vitum öll sem hér erum að það er stöðugt verið að kalla á róttækari aðgerðir, skýrari aðgerðir. Þetta frumvarp er bara eitt skref af mörgum sem við þurfum að stíga en það er mikið og mikilvægt skref. Ég er virkilega ánægð með þá vinnu sem umhverfis- og samgöngunefnd lagði í nefndarálitið og þakka nefndarmönnum fyrir þann samhug sem var að finna í nefndinni.