helgidagafriður.
Virðulegi forseti. Ég verð að taka undir það með hv. þingmanni sem talaði á undan mér að mér finnst áferðin ekki alveg eins og ég myndi vilja hafa hana. Ég myndi vilja fella lögin brott, samanber frumvarpið sem Píratar lögðu fram fyrr á þessu þingi. Þetta er þó mál í rétta átt og ég vona að það verði munað næst þegar hv. Sjálfstæðismaður segir að honum finnist að það eigi að vera meiri fókus á að fjarlægja lög en að vera alltaf setja ný að það er alla vega einn Pírati sammála þeim. Mér finnst á stundum að það vanti að sýna í verki það sem sagt er í orði.