lýðskólar.
Frú forseti. Það er mikilvægt að koma hingað upp og þakka bæði ráðherra en ekki síður þingheimi. Þetta er gríðarlega merkilegt og mikilvægt skref. Við erum að ýta undir bæði fjölbreytni og aukin tækifæri í kerfinu okkar, bæði hinu óformlega sem formlega skóla- og menntakerfi, og við erum með ánægjulega sprota um landið, bæði í gegnum LungA, Lýðháskólann á Flateyri og vonandi að við eigum eftir að sjá líka enn einn sprotann spretta upp á Laugarvatni í gegnum íþróttaskóla og tengingu við Ungmennafélag Íslands. Þetta er gríðarlega mikilvægt skref, við erum að opna kerfið, við erum ekki að loka því og það hefur bara gott í för með sér og verður til farsældar fyrir íslenskt samfélag.
Ég segi því já við þessu góða frumvarpi.