149. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2019.

loftslagsmál.

758. mál
[19:41]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Það er ánægjulegt að loftslagsmál skuli fá góðan tíma hér á Alþingi og mikinn áhuga, sýnilega. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012, með síðari breytingum (styrking á stjórnsýslu og umgjörð). Ég verð að viðurkenna, herra forseti, að ég er dálítið hugsi yfir þessu frumvarpi.

Fyrir örfáum árum var komið á fót svokölluðu loftslagsráði sem hafði í sjálfu sér stefnumarkandi hlutverk. Á bls. 2 í frumvarpinu, í a-lið 3. gr. sem verður 5. gr. b um loftslagsráð, með leyfi forseta:

„Starfrækja skal loftslagsráð sem hefur það meginhlutverk að veita stjórnvöldum aðhald og ráðgjöf um stefnumarkandi ákvarðanir og markmið Íslands sem tengjast loftslagsmálum.“

Síðan segir:

„Verkefni ráðsins eru að:

1. Veita ráðgjöf um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og aðgerðir til að auka kolefnisbindingu.

2. Veita ráðgjöf um aðlögun að loftslagsbreytingum.

3. Rýna á undirbúningsstigi áætlanir stjórnvalda sem snerta loftslagsmál.

4. Miðla fræðslu og upplýsingum um loftslagsmál til almennings, fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga.

5. Veita ráðgjöf um vöktun og rannsóknir sem tengjast loftslagsbreytingum.

6. Vinna að öðrum verkefnum sem ráðherra felur ráðinu hverju sinni.

Tryggt skal að í ráðinu eigi sæti fulltrúar atvinnulífsins, háskólasamfélagsins, sveitarfélaga og umhverfisverndarsamtaka auk annarra fulltrúa sem nauðsynlegt er talið að eigi sæti í ráðinu á hverjum tíma. Ráðherra skipar formann og varaformann loftslagsráðs.

Loftslagsráð skal gæta óhlutdrægni og vera sjálfstætt í störfum sínum.

Loftslagsráð skal skipað til fjögurra ára í senn.“

Um verkefnisstjórnina sem nú á að setja á laggirnar, samkvæmt 2. gr. frumvarpsins, segir, með leyfi forseta:

„Ráðherra skipar verkefnisstjórn sem mótar tillögur að aðgerðum og hefur umsjón með að þeim sé hrundið í framkvæmd.“

Nú er mér ekki ljóst, eftir að hafa lesið þetta frumvarp hratt yfir, hvort það er verkefnisstjórnin sem á að hafa aðhald eða eftirlit með loftslagsráði eða öfugt. Síðan getur maður ekki gleymt því að til er á Íslandi stofnun sem heitir Umhverfisstofnun sem hefur styrkst og eflst undanfarin ár, sem betur fer. Maður veltir fyrir sér hve margar stjórnir og mörg ráð þarf til að fara yfir þessi mál.

Í greinargerðinni, á bls. 4, segir, með leyfi forseta:

„Ástæða er til að uppfæra ýmis ákvæði laganna og setja ný ákvæði sem styrkja stjórnsýslu í loftslagsmálum og auðvelda stjórnvöldum að ná settum markmiðum í loftslagsmálum, svo sem um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda til 2030 og kolefnishlutleysi árið 2040.“

Nú segi ég enn: Umhverfisstofnun hefur m.a. það hlutverk með hendi að tryggja loftgæði og sjá um loftslagsmál. Í umhverfisráðuneytinu er mikil þekking á loftslagsmálum. Því verð ég að spyrja aftur hvaða tilgangi það þjónar að setja eina stjórnina enn nema menn þurfi bara pláss til þess að planta félögum sínum í þægilega innivinnu. Ég sé ekki að þetta sé til þess að styrkja málið. Þetta er þvert á móti til þess fallið að dreifa kröftunum. Á bls. 5 er talið upp hverjir skipa núverandi loftslagsráð og ég ætla svo sem ekki að lesa það upp, en þar er talað um að nú eigi að veita svigrúm með reglugerð til að ráðherra geti fjölgað í loftslagsráði, einnig fyrir utan verkefnisstjórnina. Fljótt á litið gæti ég bent á að vel færi á því að FÍB ætti fulltrúa í loftslagsráði vegna þess að það eru jú bifreiðaeigendur sem bera uppi meginþungann af þeirri skattheimtu sem beitt er til að borga brúsa loftslagsáhrifanna.

Það er í sjálfu sér dálítið merkilegt, herra forseti, þegar maður lítur á það að útblástur bifreiða er sökudólgurinn í 3–5% af heildarlosun kolefnis á Íslandi. Maður spyr sig: Ef maður ætlaði að fara að stífla á myndi maður þá byrja á einhverri pínulítilli kvísl sem stæði undir 3% af rennsli árinnar? Ég held ekki, herra forseti. Ég held að maður myndi reyna að ráðast að þeim þáttum sem eiga miklu ríkari þátt í því að spúa út kolefni en þetta. Það kom fram í mjög góðri ræðu hjá hv. þm. Rósu Björk Brynjólfsdóttur að við ættum að setja þessa umræðu í forgang og lyfta loftslagsmálunum ofar á forgangslista stjórnvalda hverju sinni. Ég gæti ekki verið meira sammála. Þess vegna hræðist ég það mjög að menn séu að drepa þessum málum á dreif með því að dreifa kröftunum og setja nefndir og ráð úti um allt sem maður veit ekki alveg hvað á að gera með.

Menn ætla að ná miklum árangri í kolefnislosun og byrja, eins og ég segi, á því að ráðast á 3–4%, þ.e. bíleigendum. Það er búið að tala mikið um að í því sambandi eigi að beita orkuskiptum, sem er mjög göfugt markmið og allt í lagi með það. Á sama tíma og menn eru að plana það að koma hér á orkuskiptum er verið að stíga skref með tveimur þingsályktunartillögum og tveimur frumvörpum í að innleiða orkupakka þrjú, frá Evrópusambandinu, sem mun sannarlega hækka orkuverð á Íslandi. Fleiri og fleiri eru að ganga í þá gildru að kaupa sér rafmagnsbíl og eiga á hættu að innan nokkurra ára muni rafmagnsverð, það er til þess að fylla á þann bíl, hækka verulega. Þess vegna finnst mér að þessi mál, loftslagsmál á Íslandi — allt það sem gert er og sagt er það stangast á. Þau markmið sem við höfum haft uppi um að koma á orkuskiptum, draga úr losun o.s.frv., eru að litlu gerð eða, eins og maður segir, það er alla vega lamið á hendurnar á þeim sem ætla sér að taka þátt í þessu átaki með því að gera ráðstafanir sem munu hækka verð verulega.

Síðan er annað sem er ekki alveg í takt við þetta frumvarp og er ekki alveg í takt við það sem stjórnvöld ætla sér að gera. Nú á að leggja á sérstakan sorpskatt sem á að skila 1,5 milljörðum á næsta ári og 2,5 næstu fjögur ár. Á sama tíma er dregið úr þeim fjármunum sem fara til umhverfismála hér á landi. Þarna segi ég aftur: Það fara ekki saman orð og athafnir og menn eru að vinna, hvað á ég að segja, á móti sjálfum sér.

Talandi um sorpskatt: Það hefur jú verið sagt réttilega að metanútblástur úr ruslahaugum sé mjög skaðsamur loftinu. Metan er í sjálfu sér miklu öflugra efni en koltvísýringur þegar við komum að því að rýra loftgæði. En hvergi er að finna neins staðar í áætlunum stjórnvalda, sem maður hefur séð enn, að draga eigi úr urðun sorps, síður en svo. Menn hafa tekið sífellt stærri svæði undir. Ég nefni t.d. svæði eins og Fíflholt á Mýrum, svæði nálægt Blönduósi, svæði á Suðurlandi þar sem menn hafa sameinast um að urða sorp frá Rangárvallasýslunum báðum og síðan Skaftárhreppi og þar austur um.

Öll þessi sorpurðun virðist framkvæmd, að því er manni sýnist, án þess að verulegar rannsóknir liggi að baki áður en menn fara til þess arna. Ég hef ekki enn séð rannsóknir, kannski eru þær til, sem sýna fram á áhrif þessarar urðunar, t.d. á grunnvatn. En látum það nú vera. Þarna erum við að byrgja inni sorp til áratuga með mjög mikilli hættu á að metan losni út. Við erum þegar að brenna metan uppi í Álfsnesi sem ekki er nýtt til neins, ekki nýtt á bíla, hvorki smáa né stóra. Við erum að brenna metanið þar til þess að það komist ekki ómengað út í andrúmsloftið. Þetta er náttúrlega sóun eins og maður hefur aldrei séð áður.

Í fyrsta lagi er búið að kosta miklum peningum til að urða sorpið upphaflega. Síðan, eftir að allir þeir fjármunir hafa farið til þess að grafa það niður, myndar sorpið metan sem við erum ekki að nýta og virðumst ekki ætla að nýta heldur neyðumst við til að brenna metani sem er að verðmæti mjög margar milljónir á hverju ári. Síðan verðum við að horfa á það líka að umgengnin, t.d. í Fíflholti á Mýrum, upp í Álfsnesi og víðar, hefur ekki þótt til fyrirmyndar. Þannig að halda að vandamál sorps hverfi bara með því að urða það — því miður er það ekki svo, herra forseti. Það er aldeilis ekki svo og við verðum að bíta úr nálinni með afleiðingar þessa mjög lengi. Ég held að við verðum að horfa, Íslendingar, á þessi mál í stærra samhengi. Við horfum núna á einstaka þætti og við virðumst byrja á því að taka einhverja smáanga sem, eins og ég sagði áðan, skipta verulega litlu máli, samanber útblástur lítilla ökutækja, 3–4%. Við ætlum líka, þó að það komi þessu kannski ekki beint við, að hætta að nota plastpoka til þess einmitt að urða sorp í að hluta, en þetta er hverfandi lítill hluti af því sem við ættum að vera að ráðast gegn.

Á árunum 2013–2016 voru þingmenn Vinstri grænna að leita logandi ljósi að því að benda á hvað þeir hefðu átt við þegar þeir töluðu um að menn ættu að gera eitthvað annað en að reisa stóriðjuver — það var nú áður en þeir ákváðu að reisa meðalstóriðjuna á Húsavík sem brennir nokkrum tugum þúsundum tonna af kolum á hverju ári — og þá kváðu einhverjir þingmenn hér upp úr með að ferðamennskan væri þetta eitthvað annað sem Vinstri græn hefðu séð fyrir. Ég man að ég sagði, í umræðum við þessa ágætu hv. þingmenn á sínum tíma, að víst væri það alveg rétt að ferðamennskan væri ágætisatvinnugrein. En það versta við hana væri það að í fyrsta lagi mengaði hún alveg rosalega og í öðru lagi þá væri hún líkleg til að skapa láglaunastörf frekar en hitt. Ég man að ég lenti í þó nokkrum orðahnippingum á þeim tíma einmitt um það atriði. Eins og allir vita þá kostar það engan smávegis útblástur að ferja til Íslands 2 milljónir ferðamanna eða meira á hverju ári og að senda þá til síns heima. Fyrir utan þá sem eiga hér viðkomu og fara vestur um haf þó að dregið hafi úr þeirri starfsemi um stundarsakir vegna þess að WOW féll — sem er nú efni í aðra umræðu sem verður ekki farið í hér. Síðan horfðu menn ekki á það að af þessum 2 milljónum ferðamanna myndi trúlega þó nokkur fjöldi fara hringinn sem kallað er. Það þýðir að við erum hérna með 100 bílaleigur og við erum með nokkra tugi þúsunda bílaleigubíla sem sinna þeim markaði. Það er hvergi um þessi mál getið í þeim drögum sem við horfum hér á. Ég segi aftur: Okkur vantar að víkka út vandamálið sem við erum að horfa á, hvernig við ætlum að leysa það.

Síðan er annað sem menn hafa gripið til, að því er virðist í töluverðu flaustri, og það er að fara að moka ofan í skurði. Margir ágætir menn hafa komið á fund okkar Miðflokksfólks og rætt einmitt það atriði og eru flestir sammála um að engar beinharðar vísindalegar rannsóknir liggi að baki því að moka ofan í skurði til þess að reyna að koma í veg fyrir kolefnislosun. Það sé þannig að elstu skurðirnir sem við erum með hér á landi, sem eru kannski til þess fallnir að menn vilji fara að moka ofan í; að þær mýrar séu búnar að losa það kolefni sem í þeim var, að því er færustu menn halda. Þess vegna spyr maður: Ef við ætlum virkilega að fara í markvissar aðgerðir sem taka á flestum þáttum þessa máls er ég ekki endilega viss um að árangurinn sé falinn í því að stofna í sífellu fleiri nefndir og ráð. Síðan þarf alveg örugglega, ef við samþykkjum að stofna þessa verkefnisstjórn, sem á að vinna annaðhvort til hliðar, ofan eða neðan við loftslagsráðið, að mynda einhvern samræðuvettvang þannig að þessi tvö apparöt geti skipst á skoðunum plús Umhverfisstofnun, plús ráðuneytið. Hvert erum við komin þá? Við erum kannski komin með 50 manna hóp sem þarf að funda nokkrum sinnum á ári. Ég segi bara, herra forseti: Er líklegt að svona ofvöxtur í einmitt þessu muni skila okkur einhverjum árangri?

Í upphafi frumvarpsins segir, með leyfi forseta:

„Ráðherra lætur gera aðgerðaáætlun í loftslagsmálum þar sem setja skal fram tillögur að aðgerðum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka kolefnisbindingu hér á landi. Í aðgerðaáætluninni skal koma fram mat á áætluðum kostnaði ásamt mati á loftslagsávinningi af framkvæmd aðgerðanna sem þar eru lagðar til.“

Síðan kemur þessi dæmalausa verkefnisstjórn sem á að móta tillögur að aðgerðum og loftslagsráðið þarf líka að veita stjórnvöldum aðhald og ráðgjöf um stefnumarkandi ákvarðanir. Síðan, eins og ég segi, höfum við Umhverfisstofnun og við höfum fleiri stofnanir á sviði náttúruvísinda sem ég hélt að væru stjórnvöldum til ráðgjafar um það hvernig við getum best hagað okkur í þessum málum. En við höldum áfram að prika upp nefndum og ráðum í staðinn fyrir að setja þetta mál bara í hendur þeirra sem gerst þekkja. Þá ætla ég aftur að nefna umhverfisráðuneytið, þar sem eru okkar færustu sérfræðingar í loftslagsmálum, hafa setið hverja loftslagsráðstefnuna á fætur annarri, hafa tekið þátt í samningagerð, bæði fyrir Parísarsamkomulagið og áður, Kyoto o.fl. Ég get ekki annað séð en að þetta fólk sé vel til þess fallið, hafi vitneskju, þekkingu, til að geta „hjálpað stjórnvöldum“ til að komast að sem bestri niðurstöðu.

Ég sé, herra forseti, að ræðutími minn er um það bil að enda. Því miður, því að ég er rétt kominn af stað með að ræða það sem ég ætlaði að láta frá mér fara um þetta mál og um þetta frumvarp. Ég fer því fram á það við forseta að hann setji mig aftur á mælendaskrá nú þegar ræðutíma mínum lýkur.