loftslagsmál.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er áhugavert sem hv. þingmaður kom inn á í lok ræðu sinnar, hvort einhverjum detti það virkilega í hug að það hafi verið blessun af einhverju tagi að WOW, það ágæta flugfélag sem hér starfaði, hafi farið á hausinn, að því fylgi mögulega blessun fyrir umhverfið eða eitthvað slíkt. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Kannski hefur sá sem hér stendur ekki fylgst nógu vel með, en er það virkilega þannig að fólk hafi talað á þeim nótum að fall þess félags sé á heildina litið gott út af umhverfismálum og út af baráttu Íslands þegar kemur að loftslagsmálum? Ég vona að svo sé ekki, því að það væri mjög sérstakt ef svo væri.
Mig langar líka að spyrja hv. þingmann, af því að hann situr nú í umhverfis- og samgöngunefnd, hvort á einhverjum tímapunkti hafi verið ræddir af hálfu ríkisstjórnarflokkanna einhverjir jákvæðir hvatar fyrir landsmenn í orkuskiptum, svo að dæmi sé tekið, til að fá fólk til að horfa betur á sitt daglega líf út frá umhverfismálum. Eða eru þetta allt boð og bönn — aukin kolefnisgjöld, aukin skattheimta, sem er svolítið sérstakt í stjórn þar sem Sjálfstæðisflokkurinn ber ábyrgð á fjármálum, að verið sé að taka upp hærri skatta? Ég spyr hvort það hafi verið rætt í nefndinni og þá hvort þingmaðurinn hafi velt því fyrir sér að nota skattkerfið til að hvetja þá sem vilja mögulega skipta um bifreið og endurgreiða eitthvað af kostnaðinum við að eignast rafbíl, hvort sem það er í gegnum skattkerfið eða eitthvað þess háttar. Auðvitað erum við að fella niður gjöld af þessum bílum í dag, en hugsanlega má gera meira með jákvæðum formerkjum.