þjóðgarðurinn á Þingvöllum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Til að byrja með vil ég að það sé alveg skýrt að sú gjaldtaka sem hér um ræðir, sem ég kom inn á áðan, snýst um þjónustugjöld sem ætlað er að standa undir kostnaði við gerð samninga um veitingu leyfa, umsjón og eftirlit vegna hinna leyfisskyldu starfsemi. Það er ekki nein gjaldtaka umfram það.
Þetta frumvarp er hins vegar liður í samræmingu. Það er skref í átt til meiri samræmingar í því að setja fram atvinnustefnu og í því að búa til samræmdar reglur um starfsemina. En svo er hér kafli sem ég hoppaði yfir í nefndarálitinu, en þar segir einmitt:
„Meiri hlutinn tekur fram að í frumvarpi til laga um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða frá umhverfis- og auðlindaráðherra er lagt til að reglur fyrir alla þjóðgarða landsins verði samræmdar, þ.m.t. þjóðgarðinn á Þingvöllum. Frumvarpið er til meðferðar á Alþingi en ekki liggur fyrir hvort næst að afgreiða málið fyrir þinglok.“
Takist hins vegar að afgreiða það eða þegar það verður afgreitt verður komið á meiri samræmingu yfir alla þjóðgarða í landinu. En eins og staðan er núna er töluvert í land með að afgreiðslu þess frumvarps verði lokið og það lá fyrir hjá umhverfis- og samgöngunefnd, þeirri vinnslu þar, en þetta mál var aftur á móti unnið í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.