149. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2019.

þjóðgarðurinn á Þingvöllum.

802. mál
[23:11]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Ég hafði undirbúið talsverða ræðu um þetta mál og annað sem því tengist en hef svo verið beðinn um að stytta mál mitt eins og kostur er til að liðka fyrir þingstörfum. Ég hefði gjarnan viljað hafa tækifæri til að flytja ræðuna sem ég hafði undirbúið og raunar var ekkert víst að ég kæmi öllu fyrir í einni ræðu en þar sem ég er yfirleitt allur af vilja gerður að liðka fyrir þingstörfum ætla ég að leitast við að stytta mál mitt eins og kostur er. Þó vildi ég geta þess sérstaklega að þótt frumvarpið sé ágætt og ég hafi ekkert út á það að setja sem slíkt finnst mér tilefni til þess nú að nefna að það mun auðvitað skipta máli hvernig farið verður með það vald sem Þingvallanefnd er fengið samkvæmt frumvarpinu. Í því samhengi vildi ég nefna sérstaklega að menn gleymi ekki mikilvægi hins manngerða umhverfis, jafnvel á stað eins og Þingvöllum. „Jafnvel“ segi ég, en ég ætti kannski frekar að segja „ekki hvað síst“ á stað eins og Þingvöllum.

Eins og allir Íslendingar þekkja, eða væntanlega a.m.k. flestir, eru Þingvellir alveg einstaklega merkilegur staður frá náttúrunnar hendi, hvort sem litið er til jarðfræði, dýralífs eða annarra náttúrulegra þátta þar sem Norður-Ameríka og Evrópa mætast, eða fjarlægjast eftir því hvernig á það er litið. En staðurinn er ekki síður merkilegur fyrir þá sögu sem hefur farið fram þar nánast allt frá landnámi og er í rauninni fyrir vikið á margan miðpunktur hátt Íslandssögunnar. Þar af leiðandi er eðlilegt að á Þingvöllum séu minjar um veru mannanna á Þingvöllum. Það eru ekki mörg mannvirki í þinghelginni núna og raunar hef ég haft svolitlar áhyggjur af því að menn vilji nánast útmá minjar um sögu mannanna á Þingvöllum. Til að mynda kom sú umræða mjög upp á yfirborðið eftir að Hótel Valhöll brann. Að sjálfsögðu viljum við að þau mannvirki sem kynnu að vera reist á slíkum stað séu það sem kalla mætti sameign þjóðarinnar, séu mannvirki sem styðja við heildarmynd Þingvalla og Íslendingar líti svo á að séu sameign okkar allra. En einmitt Hótel Valhöll gæti gegnt því hlutverki ágætlega, yrði hótelið endurbyggt.

Nú ætla ég, herra forseti, til að standa við það að tala ekki lengi að sleppa því að rekja sögu Hótels Valhallar en láta nægja að benda á að hótelið var fyrst byggt árið 1898 svoleiðis að hótel hafði staðið á Þingvöllum í meira en 100 ár þegar það brann og alveg tilefni til að skoða af alvöru að endurbyggja þetta hótel og þá á sama stað og hótelið sem brann, þó að það hafi ekki staðið þar í upphafi. Það hafði áður staðið við svonefndan kastala en þótti ekki fara vel á því að hafa hótel þar svoleiðis að það var flutt fyrir 1000 ára afmæli Alþingis, flutt á árunum 1928 og 1929 svoleiðis að hægt væri að nýta það við hátíðahöldin í tilefni af 1000 ára afmæli þingsins.

Á sama tíma var Þingvallabærinn byggður, reyndar bara þrjár burstir þá og svo var bætt við Þingvallabæinn fyrir landnámsafmælið 1974 tveimur burstum. Menn geta rétt ímyndað sér hvort ekki væri sjónarsviptir að því að Þingvallabærinn, ég tala nú ekki kirkjuna líka, væri ekki þar sem þessi mannvirki standa. Flestar myndir sem menn þekkja frá Þingvöllum eru teknar af Hakinu, af barmi Almannagjár, yfir einmitt svæðið þar sem Þingvallabærinn stendur. Ég er þeirrar skoðunar og ég ímynda mér að flestir geti verið sammála mér um að það að hafa þessi mannvirki, hús, á staðnum skerði ekki á nokkurn hátt útsýnið heldur miklu frekar gefi því aukið vægi og staðnum þar með aukið vægi.

Þessu vildi ég koma á framfæri, að við gleymum ekki mikilvægi þess að sýna aðkomu mannanna og sögu þjóðarinnar á staðnum þrátt fyrir að við gætum þess að sjálfsögðu í hvívetna að vernda náttúru staðarins. Þetta getur farið vel saman. Svo má auðvitað hugsa sér að ráðast í framkvæmdir utan við þinghelgina sjálfa til að reyna að dreifa ferðamönnum meira um svæðið, þó að ég geri ráð fyrir að allir sem hafa lagt leið sína til Þingvalla muni vilja fara inn í sjálfa þinghelgina. Svo ég nefni bara eitt dæmi í þessari allt of stuttu ræðu minni mætti til að mynda reisa búðir eins og stóðu á Þingvöllum öldum saman einhvers staðar utan við þinghelgina og búa til sérstakan ferðamannastað úr þeim þar sem gæti verið nokkurs konar víkingaþorp og menn selt ýmsan varning og þannig dreift álaginu frá því sem nú er. Við sjáum til að mynda hvaða áhrif það eitt að aðrir hlutar Þingvalla en þeir sem hafa verið miðpunkturinn hjá ferðamanninum hafi verið notaðir í upptökur á sjónvarpsþáttunum Game of Thrones. Það eitt og sér hefur orðið til þess að vekja aukinn áhuga á fleiri stöðum en ferðamenn sóttu áður. Það sama getum við gert með því að byggja eitthvað og veita þjónustu sem fólk sækir í.

Ég ætla að láta þetta nægja til að ég standi nú við þau fyrirheit sem ég gaf um að tala ekki lengi en það er fjölmargt annað sem ég hefði gjarnan viljað koma að hérna. Ég nefni kannski eitthvað af því við 3. umr. en segi þetta gott af ræðuhöldum að sinni.