149. löggjafarþing — 121. fundur,  12. júní 2019.

frysting fjármuna og skráning aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna.

774. mál
[11:22]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Það komu upp áhyggjur af því í nefndinni hversu víðtækt þetta gæti verið og þessi breytingartillaga er til að bæta það verulega. Ég hef samt enn sem komið er ákveðnar áhyggjur af því að frekari aðkomu dómstóla vantar í þessum málum á fyrri stigum og því mun ég sitja hjá við 8. gr., svo breytta, þótt ég styðji breytingartillögurnar.