149. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2019.

tilkynning forseta.

[10:34]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti vill upplýsa að fyrir hönd Alþingis tók 1. varaforseti í gær, miðvikudaginn 12. júní, við undirskriftalista til stuðnings Nöru Walker. Erindið hefur verið lagt fram á lestrarsal.