149. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2019.

stjórnsýsla búvörumála.

781. mál
[10:37]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Þetta frumvarp gæti alveg verið heillaskref. Það er verið að færa stjórnsýslu búvörumála frá Matvælastofnun inn í ráðuneytið. Þó vil ég ítreka að það kom skýrt fram í nefndinni hjá þeim sem er verið að færa, eða frá Matvælastofnun, að það þarf að tryggja að þeir hafi fjármagn til að sinna ákveðnum samlegðarverkefnum sem hlutust af því að hafa upplýsingatæknisérfræðinga hjá sér annars vegar og hins vegar að þegar búið er að færa upplýsingatæknideild sem er að sinna þessum málum inn í ráðuneyti hafa þeir verið alveg skýrir um það að þeir verði að fá góðan aðgang að upplýsingum sem þeir hafa haft, að þeir hafi hann áfram þarna og sé ekki verið að skipta þessu teymi upp, þannig að þeir geti raunverulega sinnt því sem þeir eiga að sinna.

Við erum á gula hnappnum vegna þess að við vitum ekki hvernig þetta fer raunverulega en ef farið verður eftir þessum ráðum, sem maður veit ekki þegar kemur að peningum, fer þetta líklega vel.