149. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2019.

fiskeldi.

647. mál
[13:01]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi (áhættumat erfðablöndunar, úthlutun eldissvæða, stjórnvaldssektir o.fl.). Í ljósi þess að margir þingmenn eru á mælendaskrá í þessu máli ætla ég að stytta mál mitt sem frekast kostur er. Ég vil byrja á að þakka nefndarmönnum í atvinnuveganefnd, formanninum og sérstaklega framsögumanni málsins, hv. þm. Kolbeini Óttarssyni Proppé, fyrir góða leiðsögn í þessu máli og gott samstarf í nefndinni eins og hefur komið fram í þessum stól. Þetta er auðvitað töluvert stórt mál og ég ætla ekki að endurtaka það sem hér hefur verið sagt. Framsögumaður nefndarálitsins fór afar vel yfir það sem snýr að þessu máli og lykilþáttur í því verður tekið inn til nefndar á milli 2. og 3. umr. til að lagfæra þá agnúa sem þarf að laga á þessu stóra og viðamikla máli og ég treysti því, og við treystum, að það verði gert í sátt. Það er mjög mikilvægt fyrir þau samfélög sem eru að treysta atvinnugrundvöll sinn og byggðirnar í þessum samfélögum á Vestfjörðum og fyrir austan. Það er mjög mikilvægt að við komum einhverju skikki á þetta fyrir þau svo þau geti horft til framtíðar með trausta og góða atvinnu.

Laxeldinu hefur vaxið fiskur um hrygg á Vestfjörðum og fyrir austan og haft gríðarleg áhrif á afkomu fólks og sveitarfélaga í þessum fjórðungum og vinna nú hátt í 500 manns við laxeldi á Íslandi. Á þessu ári er reiknað með að framleiðslan á eldislaxi verði um 25.000 tonn og mun hún aukast á næstu árum. Verðmæti þessarar framleiðslu eins og á Vestfjörðum er álíka og þorskurinn er að gefa á því svæði og segir okkur því mjög mikið hvað hér er undir.

Ég vil líka varpa ljósi á það að ef Ísland ætlar að búa við þann hagvöxt og þá velsæld sem ríkir í landinu nú um stundir þurfum við á næstu 20 árum að auka útflutningsverðmæti þjóðarinnar um einn milljarð á viku, 1.000 milljónir, til að standa undir 3% hagvexti á hverju ári og þeim lífsgæðum sem þessi þjóð krefst og vill búa við. Við eigum stærsta möguleika á því að sækja þetta í laxeldi. Það er sú grein sem getur gefið okkur hvað mest af þeim tekjum sem þetta þjóðarbú þarfnast á næstu árum. Það er sú atvinnugrein sem þessar byggðir ætla að byggja á og þær bíða nú eftir því að eyða þeirri óvissu sem ríkt hefur um þessa atvinnugrein og þau fyrirtæki sem sækja um leyfi til að vinna og starfrækja fyrirtæki sín á þessum stöðum. Það er gríðarlega mikilvægt að þau skilaboð komi frá þinginu að við ætlum að standa á bak við þessa grein.

Mig langar í stuttri ræðu aðeins að minnast á eitt helsta málið og nýjungarnar í þessu máli sem eru hið svokallaða áhættumat um erfðablöndun. Það er nýmæli á heimsmælikvarða sem er sett fram í þessum lögum. Með því er líka sett mikil ábyrgð á Hafrannsóknastofnun Íslands að fara með þetta mat og gera það eins vel og kostur er. Ég treysti Hafrannsóknastofnun fullkomlega. Það er reyndar ekki undir öllum kringumstæðum eðlilegt að slík stofnun taki slíka ábyrgð en sú ákvörðun hefur verið tekin með þessum lögum að gera það. Áhættumatið felur í sér skoðun á lífrænum áhrifum á eldissvæði, sníkjudýrum, sjúkdómum og áhættumat erfðablöndunar.

Síðan eru ýmsar mótvægisaðgerðir varðandi þessi atriði eins og kynslóðaskipt eldi, stærð seiða, möskvar, vöktun áa, lýsing og seinkun kynþroska sem eru gríðarlega mikilvægar í þessu áhættumati. Við erum að segja að áhættumatið verði lifandi mat eftir þeim mótvægisaðgerðum sem fyrirtækin munu leggja fram og mikilvægt að Hafrannsóknastofnun taki mark á þeim mótvægisaðgerðum sem gerðar verði til þess að áhættumatið virki eins og kostur er. Mjög mikilvægur punktur í þessu máli er líka að vinnsla á afurðum og laxeldi verði sem mest á svæðunum sjálfum og flytjist alls ekki úr landinu. Tekjur sveitarfélaganna eru líka mikilvægar, ekki aðeins af útsvarstekjum frá starfsfólki heldur líka af eldinu sjálfu, og verður það mál tekið frekar fyrir í sérstöku gjaldtökumáli sem er næsta mál á dagskrá þegar þessu máli lýkur.

Ég vil bara í heildina segja í þeirri stuttu ræðu sem ég ætla að flytja að þetta er gríðarlegt byggðamál. Þetta er landsbyggðarmál. Þetta er byggðamál þar sem þingið þarf að standa með hinum dreifðu byggðum, standa með þeim stöðum sem þegar eru komnir af stað með laxeldið og standa með þeim fyrirtækjum sem eru að skaffa hundruðum manns vinnu og munu verða þúsundir þegar fram líða stundir. Þetta er vaxtarbroddurinn í útflutningstekjum á Íslandi, þetta er sú grein sem getur séð til þess að velmegun haldi áfram að þróast á Íslandi og að við munum skila í landinu á þann stað þar sem við höfum kosið. Efnahagslegar og jákvæðar afleiðingar af eldinu gætu orðið þúsundir milljarða á næstu árum.