fiskeldi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Hann sagði: Jú, við erum alveg á þeirri blaðsíðu að ég er algjörlega með fiskeldi en ég vil líka standa með náttúrunni og náttúrulegum fiskstofnum. Það sem ég hef líka áhyggjur af eru þessar mótvægisaðgerðir í fiskeldinu. Við vitum ekki hvaða áhrif hlýnun hefur. Við vitum að nú er bleikjan að gefa eftir vegna hlýnunar og síðan vitum við ekki hvaða áhrif mengun í höfum á eftir að hafa á villta laxastofninn. Við erum að kljást við ýmsa hluti en varðandi þessa hluti sem við stjórnum með fiskeldi og öðru eigum við alltaf að passa upp á að náttúran njóti vafans. Það er mín skoðun að við eigum að gera allt sem við getum til að sjá til þess. Á sama tíma verðum við líka að huga að fiskeldinu vegna þess að það er kannski líka framtíðarmatarforðabúr hjá okkur. Þetta er bara hluti af okkar umhverfi en við verðum líka að gera þetta þannig.
Ég veit að það er kannski erfitt að koma þessu upp á land, í kvíar upp á land, en við eigum að stefna að því. Ef það er gígantískur gróði af þessu eða verður í framtíðinni, þetta á eftir að byggjast upp, á auðvitað að nota þann gróða til að vernda náttúruna.