fiskeldi.
Herra forseti. Við ræðum frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi. Ég tel mjög gott að við séum að ljúka þeirri umræðu að setja sterkari stoðir undir löggjöf um fiskeldi og styrkja alla lagaumgjörð um þennan mikilvæga atvinnuveg til framtíðar, ekki bara fyrir viðkomandi landsvæði heldur líka þjóðarbúið sem slíkt. Þarna höfum við möguleika á að styrkja efnahag þjóðarinnar og auka útflutningsverðmæti mikið. Talað er um að 70.000 tonn af fiskeldi skili um 65 milljörðum í heildarverðmæti og það geti verið um 730 störf, 420 afleidd störf, samtals hátt í 1.200 störf miðað við að fiskeldi fari upp í 70.000 tonn sem núverandi möguleikar eru á að það geri. Á síðasta ári voru eingöngu framleidd um 11.000 tonn svo við eigum þó nokkuð eftir til að ná upp í þessi 70.000 tonn. Greinin hefur verið að byggjast upp hægt og sígandi og ég tel að það sé að vissu leyti gott, að menn vandi sig.
Það má kannski segja að stjórnvöld hafi svolítið dregið lappirnar með að koma til móts við að greinin hafi verið að stækka og vaxa með því að koma ekki fyrr en nú með þessa lagaumgjörð í kringum fiskeldið. Þar þarf að horfa á ýmsa þætti sem snúa að greininni og eins og hefur verið minnst á er eðlilega stór þáttur í þessari atvinnugrein hvernig að henni er staðið gagnvart umhverfisþáttum og að greinin sé sem mest sjálfbær og allir umhverfisþættir sem snúa að henni séu þar vel varðir og vaktaðir.
Ég tel að sá búningur sem kominn er um málið núna eftir vinnu nefndarinnar og þær breytingartillögur sem hér liggja fyrir eftir vinnu nefndarinnar milli 1. og 2. umr. séu allar á þann veg að þær styrki enn frekar umgjörð um greinina úr báðum áttum, bæði það sem greinin sjálf hefur kallað eftir, að eyða óvissu varðandi þætti eins og hvernig líkan sem áhættumat er byggt á verður byggt upp af hálfu vísindamanna innan Hafrannsóknastofnunar og úr umhverfisátt, hvernig við getum styrkt enn frekar að við teflum ekki í hættu okkar upprunalegu laxastofnum og að við tökum ekki áhættu varðandi erfðablöndun við laxastofna landsins.
Ég tel að við séum að fara mjög varfærnislega á þeim vettvangi og leitum allra ráða til að draga úr áhættu á erfðablöndun og treystum okkar færustu vísindamönnum í þeim efnum sem munu vinna með þetta áhættumat og líkan. Núna er verið að lögfesta áhættumatið og í því skal tekið tillit til mótvægisaðgerða sem draga úr möguleikum á erfðablöndun. Þar er m.a. ljósastýring nefnd og stærð seiða, netpokar og ýmislegt sem hægt er að gera til að draga úr erfðablöndun og áhættu í þeim efnum. Hafrannsóknastofnun mun leita líka eftir tillögum frá fyrirtækjunum sjálfum um hvaða mótvægisaðgerðir fyrirtækin eru að þróa hjá sér og telja bestar í þeim efnum og horfa til nýjustu tækni og til Norðmanna sem hafa gífurlega reynslu í þessum efnum.
Í vinnu nefndarinnar komu fram ýmsar nýjungar sem eru í breytingartillögunum, þar á meðal að við erum að setja inn vísindanefnd fyrir utan Hafrannsóknastofnun sem mun líka rýna áhættumatslíkanið. Ég tel mjög vænlegt að setja slíkt inn um vísindanefnd, að ráðherra muni skipa þrjá vísindamenn í þá nefnd til að rýna áhættumat hjá Hafrannsóknastofnun og skila áliti fyrir 1. maí 2020. Ráðherra mun í kjölfarið skila Alþingi skýrslu um viðbrögð sín við því hvaða niðurstaða kemur út úr rýni þeirrar óháðu vísindanefndar sem er þar að rýna vinnu Hafrannsóknastofnunar. Betur sjá augu en auga eins og sagt er. Þó að ekki sé þar með lagt neitt vantraust á þá vísindamenn sem vinna að áhættumati innan Hafrannsóknastofnunar er alltaf mjög gott að vísindamenn úr fleiri áttum rýni slíkt. Vissulega skiptir það miklu máli gagnvart svæðum eins og Ísafjarðardjúpi, sem er lokað í dag, vegna þess að það hefur ekki fengið áhættumat eða hefur ekki fullnustað að falla undir að opna megi það fyrir fiskeldi í opnum kvíum.
Eins og þetta lítur út núna er ég mjög bjartsýn á að ekki líði langur tími þar til það verði skýrt hver framhaldið verður í uppbyggingu á sjókvíaeldi, t.d. í Ísafjarðardjúpi svo ég nefni það.
Heilt yfir tel ég að búið sé að styrkja lagafrumvarpið mjög mikið og að við bættum við í þá samráðsnefnd sem er tilnefnd í frumvarpinu að umhverfisráðuneytið mun skipa fulltrúa inn í þá samráðsnefnd. Rétt er að halda því til haga að sú samráðsnefnd mun ekki hafa einhver áhrif á niðurstöðu Hafrannsóknastofnunar um tillögu þeirra um hvar má fara út í sjókvíaeldi varðandi líkan á áhættumati fyrir þau svæði sem hafa verið burðarþolsmetin. Það er samt mjög gott að hafa þennan vettvang fyrir umræðu þeirra hagaðila sem að málinu koma til að ræða ýmis þau mál sem eru undir varðandi vöxt og viðgang í fiskeldi og horfa líka til allra þátta sem að greininni snúa.
Ég vil þakka öllum þeim sem hafa unnið að málinu, nefndinni sem hefur unnið mjög þétt og vel saman og farið í kynnisferðir, bæði til sunnanverðra Vestfjarða og til Noregs, og kynnt sér sjókvíaeldi á þeim svæðum og séð hvað það hefur skipt miklu máli fyrir uppbyggingu á landsbyggðinni, bæði á sunnanverðum Vestfjörðum og í Noregi, og svo er mikill uppbyggingarfasi líka á Austfjörðum. Við allt þetta skiptir máli að við vöndum vel til verka, að löggjafinn sé tilbúinn að byggja utan um þennan vaxandi atvinnuveg skýra löggjöf sem atvinnugreinin veit hvernig hún á að vinna í og að við horfum til þeirrar gagnrýni sem hefur komið frá umhverfisgeiranum, að við þurfum að stíga varlega til jarðar varðandi erfðablöndun og alla umhverfisþætti, hættu á sjúkdómum og mörgu sem við treystum okkar góðu fagaðilum og stofnunum til að hafa öfluga vöktun og eftirlit með.
Ég tel að málið sé orðið mjög vel búið. Eitt stendur samt enn út af og hefur verið í ítarlegri skoðun á milli 1. og 2. umr., þ.e. hvar við drögum mörkin varðandi umsóknir sem eru í kerfinu í dag, hvort þær falli undir gömlu lögin eða þau nýju. Við höfum leitast eftir því að það sé mjög skýrt lagalega séð hvar við drögum þá línu. Við munum taka málið aftur inn á milli 2. og 3. umr. í atvinnuveganefnd þar sem við munum kynna tillögu í þeim efnum og munum byggja hana á þeirri faglegu skoðun sem verið hefur á því á milli umræðna og horfum til þess að mæta því að fjöldi fyrirtækja hefur verið að vinna í mörg ár að því að uppfylla umsóknir um að fá leyfi til fiskeldis. Við viljum að tekið sé tillit til þeirrar vinnu sem þar liggur á bak við og þeirra fjármuna sem hefur verið kostað til, en við viljum heldur ekki að til ókominna ára séu umsóknir fyrirtækja í sjókvíaeldi byggðar á gömlu lögunum. Það er ekkert vit í því, það verður að draga línuna með málefnalegum hætti.
Ég lýk hér máli mínu. Ég tel að framsögumaður hafi farið vel yfir málið og aðrir nefndarmenn sem talað hafa úr atvinnuveganefnd. Við afgreiðum málið á þessu þingi því að ég held að það sé það sem allir kalla eftir, að eyða óvissu og að við höfum traustan grunn til að byggja þessa grein upp til framtíðar öllum til hagsbóta.