fiskeldi.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni hlý orð í garð formanns nefndarinnar. Það er alveg hárrétt að við höfum unnið mjög vel saman, allir nefndarmenn, burt séð frá flokkum í þessu máli. Bara svo ég nefni það vitum við að lög geta aldrei verið afturvirk og auðvitað þarf að byggja nýjar umsóknir og þær umsagnir sem eru stutt komnar á nýrri löggjöf.
Ég er alveg hjartanlega sammála hv. þingmanni með það að áhættumat og mótvægisaðgerðir þurfa að spila saman og eins og búið er um málið núna hef ég tröllatrú á því að það eigi eftir að gera það og að mikill vilji sé því fyrir að vinna þetta vel, vandlega og fumlaust.
Mikil þekking er að byggjast upp, bæði í greininni sjálfri og líka í þeim stofnunum sem hlut eiga að máli, hjá Hafrannsóknastofnun. Þessar mótvægisaðgerðir eru þekktar og nú þegar er byrjað að beita þeim hjá Hafrannsóknastofnun með myndavélum til að prufukeyra í Ísafjarðardjúpi. Ég hef fulla trú á því að greinin eigi eftir að byggjast hratt og vel upp í umhverfi og sátt við náttúruna og að heimamenn verði glaður með að sú uppbygging sé í góðum farvegi.