fiskeldi.
Hæstv. forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi (áhættumat erfðablöndunar, úthlutun eldissvæða, stjórnvaldssektir o.fl.). Þetta frumvarp hefur, eins og komið hefur fram, verið í gangi síðustu tvö ár. Sú ákvörðun var tekin í lok síðasta þings að fresta málinu til frekari vinnslu og hefur gríðarleg vinna farið fram í vetur í þessu máli. Ég verð, eins og fleiri hafa gert, og ég geri það með glöðu geði, að þakka nefndinni fyrir gott samstarf og formanni nefndarinnar fyrir prýðilega og mjög góða formennsku; það hefur verið mjög gott að vinna þetta í nefndinni. Það hefur verið þannig þvert á flokka að allir hafa af heilum hug verið að vinna að því að ná farsælli og góðri lendingu öllum aðilum til hagsbóta. Það er auðvitað svo mikilvægt með svona starfsemi sem er í náttúrunni að horft sé til allra þátta og vandað til verka. Og það finnst mér allir hafa lagst á sveifarnar með.
Ég bý ekki á Vestfjörðum en ég bý í næsta bæ, á Snæfellsnesi, og hef fylgst vel með Vestfjörðum eða verið tengdur þangað í nokkuð mörg ár. Þegar ég steig fyrst inn á þing sem varamaður 2013 man ég að fljótlega fór ég í ferðalag með þingmönnum vestur á firði til þess m.a. að skoða fiskeldi. Þá var það að byrja á þeim svæðum og það var gríðarlega gleðilegt að sjá það líf sem var að kvikna á ný. Ég er samt ekki segja að það hafi verið líflaust áður, en að sjá þann vöxt sem var kominn af stað og bjartsýnina. Fólkið í byggðarlögunum fyrir vestan var með blik í auga. Ég hafði orðið vitni að því árin á undan að fólki á Vestfjörðum var að fækka. Atvinnulíf var í ströggli. Síðan kemur fiskeldið þarna inn með þessum krafti og þá snerist dæmið alveg við. Nú eru þær útgerðir sem eru hvað öflugastar á Vestfjörðum, alla vega á suðurfjörðunum, orðnar töluvert minni í rekstri en laxeldið á svæðinu er orðið. Þetta hefur algjörlega tekið stökkbreytingum og það er mjög gleðilegt.
Jafnframt fóru strax að heyrast áhyggjur af því að við mættum ekki ganga of nærri náttúrunni, við yrðum að láta náttúruna njóta vafans. Ég er alveg sammála því og ég held að það séu allir. Að því hefur verið unnið alla tíð síðan að ná farsælli lendingu í því að allir aðilar máls geti verið sáttir við niðurstöðuna. Þetta er samfélagsmál, landsbyggðarmál og umhverfismál og þessir þrír þættir þurfa allir að vera í lagi þegar þessu er lent.
Við í atvinnuveganefnd fórum vestur í haust og það var mjög skemmtileg heimsókn. Þá fann ég þennan mun frá 2013, hvað vöxturinn er mikill og möguleikarnir fram undan miklir ef rétt verður haldið á málum. Það kom fram áðan í ræðu formannsins, og reyndar vissi ég það, að ef framleiðsla á eldisfiski fer upp í 70.000 tonn væru það um 65 milljarðar í verðmæti og atvinnustarfsemi sem því fylgir er gríðarleg. Á síðasta ári var framleiðslan 11.000 tonn og hefur vaxið í það á þessum síðustu fimm til sex árum. Menn eru því bjartsýnir á að framhaldið sé gott. En eins og ég sagði áðan þarf þá að búa þannig um hnútana að sú uppbygging sé gerð af ábyrgð.
Ég ætlaði líka að nefna, áður en ég fer lengra, að heimsókn atvinnuveganefndar til Noregs í vetur var virkilega ánægjuleg og gagnleg okkur. Á formaður nefndarinnar heiður skilið fyrir að hafa fengið það í gegn. Það var ekkert sjálfsagður hlutur. Það er ekki sjálfsagður hlutur og engin hefð fyrir því að nefndir fari mikið til útlanda til að afla sér upplýsinga eða fara í vinnuferðir. Ég er mjög þakklátur fyrir að við skulum hafa komist í þessa ferð. Við vorum búin að kalla eftir því töluvert lengi og það varð að veruleika. Við fórum til Björgvinjar í Noregi og vorum þar í u.þ.b. viku og sóttum þar m.a. sjávarútvegsstefnu, heimsóttum fiskeldisfyrirtæki og vorum á fyrirlestrum og öðru slíku. Reynsla Norðmanna í fiskeldi er orðin yfir 50 ára gömul og þeir hafa marga fjöruna sopið í þeim efnum. Það hefur gengið á ýmsu. Þeir hafa glímt við alls konar vandamál og laxeldið fór ansi mikið niður þarna á tímabili. Nú er það í miklum uppbyggingarfasa og þá hafa þeir lært af reynslu fyrri tíma, og við getum lært af þeim hvað þeim hefur tekist og hvað ekki. Það var margt í þessari ferð sem kastaði ljósi á ýmislegt sem maður vissi ekki, svo að ekki sé meira sagt. Mönnum verður t.d. tíðrætt um íblöndun eldisfisks við villta fiska og í þessu frumvarpi, það snýst mjög mikið um það, er verið að innleiða áhættumat í þessu. Það hefur ekki verið óumdeilt og það hefur ekki verið óumdeilt hvernig þær forsendur sem eru notaðar í áhættumatinu eru til komnar og út frá hverju þær eru reiknaðar. Maður hefur heyrt á gestum að þeir hafa misjafna skoðun á því og sumir vilja bara nálgast þetta á annan hátt og tala jafnvel um, meira að segja þeir sem vilja fara varlegast í þessu en eru jafnframt í eldismálum, að stefna ætti að 0% áhættu en ekki 4% eins og er í áhættumatinu. En eins og kom fram áðan, í andsvörum sem ég átti við hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, hafa mótvægisaðgerðir þróast ansi vel í Noregi. Við erum byrjuð að feta okkur áfram með þær hérlendis líka, eins og kom fram, í tveimur ám við Ísafjarðardjúp og er spennandi að vita hvernig það gengur. Fiskurinn gengur í gegnum hálfgert síló sem telur og myndar fiskinn og ef fiskur liggur undir grun um að vera úr laxeldi er hægt að sækja hann í ána. Þetta hljómar svolítið furðulega en þetta hafa Norðmenn verið að gera með góðum árangri. Þetta virkar hjá þeim. Það getur vel verið að það sé misjafnt á milli áa, hvað þær eru vatnsmiklar eða hvernig þær eru uppbyggðar, hvernig hægt er að koma þessu við. En það er örugglega hægt að koma þessu við víða. Ég hef trú á því að við getum náð góðum árangri í því. Í sambandi við áhættumatið varð líka sú breyting á í meðferð málsins að Hafró er ekki báðum megin við borðið í sambandi við áhættumatið heldur hefur ráðherra þar aðkomu líka. Það finnst þeim sem hér stendur skref í rétta átt, að Hafró sé ekki sett í þá stöðu að vera beggja megin við borðið, algjörlega með vísindaþáttinn og líka með ákvörðunarvaldið. Hafró á í mínum huga eingöngu að vera vísindastofnun og ráðgefandi sem slík.
Töluvert hefur verið talað um, og rætt fram og til baka, lokaðar kvíar og landeldi. Lokaðar kvíar eru í þróunarfasa og það er vonandi stutt í að þær geti gengið við strendur Íslands eða á fjörðum við Ísland. Vandinn hefur helst varðað ölduhæð vegna þess að þær þola ekki mikla ölduhæð. Það hefur aðallega verið sá þáttur sem talað hefur verið um að yrði til þess að þær geti ekki staðið undir því álagi, ekki strax. Lokaðar kvíar eru þannig uppbyggðar að þær eru lokaðar og þær dæla inn í sig hreinum sjó og síðan því sem fellur frá fiskinum, dæla því í einhvers konar tanka eða annað slíkt eða alla vega frá svæðinu þar sem kvíin stendur.
Svo er það landeldið. Við heyrðum úti í Noregi að það er ekki notað nema bara í örfáum tilvikum. Það er ekki mikill uppbyggingarfasi í því. Það er líka mjög viðamikill og dýr búnaður en það er allt í skoðun. Norðmenn eru að byggja upp fiskeldi úti í hafi og það er uppbyggt eins og olíuborpallarnir, á mekanismanum sem þeir standa á. Þá erum við farin að tala um miklu meira hafsvæði, miklu meira dýpi og miklu minni hættu á mengun vegna úrgangs vegna meira dýpis, meiri strauma og vegna þess að úti í hafi er miklu meiri hreinsunarfasi af náttúrunnar hendi en innan fjarðar. Það verður mjög spennandi að fylgjast með þeirri þróun. Auk þess er sá búnaður svo stór og mikill að eitt svoleiðis apparat ber fleiri þúsund tonn af fiski eða fleiri hundruð alla vega. Það verður gaman að fylgjast með því.
Það kom líka fram áðan og það hefur verið rætt hér að koma þurfi leyfisveitingum algjörlega á hreint þannig að allir umsóknaraðilar sitji við sama borð. Ég set það algjörlega í forgang í sambandi við það að þetta klárist á þessu þingi að það verði algjörlega skýrt að sú grein frumvarpsins, 8. gr., verði alveg skýr með það að allir aðilar sitji við sama borð. Það er gott að það komi fram að endurskoðun á lögunum fari fram eigi síðar en í maí 2024 vegna þess að við erum ekki að meitla þetta í stein með þessu frumvarpi, þó að við höfum vandað okkur mjög vel í þessu máli, heldur er þetta lifandi plagg og það þarf sífellt að vera í endurskoðun. Tímarnir breytast og mennirnir með og náttúran líka. Aðstæður breytast og ýmislegt getur komið upp á sem við sjáum ekki í dag; það þarf að vera endurskoðunarfasi svo að hægt sé að bregðast við. Þetta er þannig mál.
Eins og ég kom inn á áðan er þetta mál í mikilli uppbyggingu og margir hafa látið í ljós áhyggjur. Við höfum því viljað vanda okkur enn meira í sambandi við þetta, eins og ég taldi upp áðan, með íblöndun við villtan fisk, við náttúruna og annað slíkt. Ég hef fulla trú á að við náum að taka utan um það en eins og ég sagði þarf að endurskoða árangurinn og vinna framhaldið út frá því. Ég ætla ekkert að hafa þetta öllu lengra en ég árétta að ég er mjög ánægður með þessa vinnu og hvernig hún hefur farið fram. Ég set það samt fram núna að umsóknarferlið þarf að vera alveg kýrskýrt, allir aðilar máls í sambandi við umsóknir um fiskeldi verða að sitja við sama borð svo að ekki sé hægt að misskilja eða mistúlka hlutina þannig að upp komi vandamál þar sem ekki er hægt að standa við það sem lagt var af stað með.
Að svo komnu máli þakka ég fyrir í bili og læt þetta gott heita.