149. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2019.

fiskeldi.

647. mál
[14:53]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og sömuleiðis vil ég nota tækifærið og þakka honum fyrir sérlega ánægjulegt samstarf í nefndinni um þetta mál. Á því eru auðvitað margar hliðar. Ein hliðin er sú, sem ég gerði að umtalsefni þegar kom að niðurlagi ræðu minnar fyrr í dag, að ekki liggur fyrir enn sem komið er niðurstaða í því hvernig farið verður með fyrirliggjandi umsóknir um rekstrarleyfi. Ég árétta það og ítreka sem ég sagði þá að veigamikill þáttur málsins er hvernig farið verður með rekstrarleyfi. Það er veigamikill þáttur líka af þeirri ástæðu að hér eru undir mjög miklir fjárhagslegir hagsmunir þeirra aðila sem hlut eiga að máli. Ekki hefur reynst auðvelt að fá upplýsingar um hvar það mál er statt.

Ég vildi inna hv. þingmann, sem er í hópi hv. þingmanna þeirra flokka sem standa saman að ríkisstjórn, hvort hann geti upplýst um þetta atriði og varpað ljósi á það hvenær megi vænta niðurstöðu í þessum efnum, hvenær kannski líka þeim þingmönnum sem standa utan meiri hlutans og hafa (Forseti hringir.) lagt nafn sitt við álit meiri hlutans yrðu kynntir helstu þættir og helstu kostir sem koma til álita í þessu sambandi.