149. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2019.

taka gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóður.

710. mál
[15:10]
Horfa

Frsm. minni hluta atvinnuvn. (Albertína Friðbjörg Elíasdóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti minni hluta atvinnuveganefndar með breytingartillögu um frumvarp til laga um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð. Minni hlutinn leggur ríka áherslu á að þjóðin fái hlutdeild í arðinum af nýtingu auðlinda sinna. Telur minni hlutinn rétt að til viðbótar við gjald samkvæmt 2. gr. frumvarpsins greiði rekstrarleyfishafar auðlindarentu af þeim arði sem myndast í rekstrinum og af ávöxtun þess fjár sem bundið er í starfsemi þeirra og er talin eðlileg með tilliti til þeirrar áhættu sem í starfseminni felst. Þó verði að taka tillit til árssveiflu í afkomu fyrirtækja. Gjald samkvæmt 2. gr. komi því til frádráttar frá þessum skatti. Auðlindarenta þjóðarinnar gæti þannig numið háum fjárhæðum á komandi árum. Leggur minni hlutinn til að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra verði gert að leggja fram frumvarp þess efnis.

Minni hlutinn bendir á að auðlindarenta verði til vegna verðmætis auðlinda víða um land og að nærsamfélögin þurfi oft að færa fórnir og taka á sig kostnað vegna nýtingar, þróunar og hagræðingar í einstökum auðlindagreinum. Telur minni hlutinn því sjálfsagt og eðlilegt að tryggja að hluti auðlindarentunnar renni til þessara samfélaga, ekki síst til eflingar innviða og fjölbreyttara atvinnulífs.

Minni hlutinn tekur því undir sjónarmið sem fram komu fyrir nefndinni um að ekki þurfi að stofna sérstakan innviðasjóð og leggur til að minnst helmingur tekna vegna gjaldtöku renni í sérstaka deild Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem annist skiptingu teknanna. Með því móti verði komist hjá dýrri yfirbyggingu og þannig renni meira af fjármagninu beint til sveitarfélaganna. Minni hlutinn leggur til að nánar verði kveðið á um úthlutun framlaga til sveitarfélaga í III. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, og í reglugerð sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra setur í samráði við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Samband íslenskra sveitarfélaga.

Minni hlutinn leggur til breytingartillögu í samræmi við þetta. Undir nefndarálitið rita Albertína Friðbjörg Elíasdóttir og Jón Þór Ólafsson.