taka gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóður.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég viðurkenni að ég náði ekki alveg að kynna mér álit minni hlutans en það sem ég er að velta fyrir mér er meginmunurinn á áhrifunum af tillögu minni hlutans og svo meiri hlutans varðandi fiskeldissjóð og hins vegar jöfnunarsjóð. Ég skil hugsunina hjá minni hlutanum, að fjármagnið fari í jöfnunarsjóðinn og verði úthlutað þaðan, en telur hv. þingmaður ekki áhyggjuefni að í tillögum meiri hlutans sé ekkert fjallað um hvernig þessi fiskeldissjóður eigi að starfa?