taka gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóður.
Frú forseti. Við ræðum frumvarp til laga um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð. Tvö nefndarálit liggja fyrir og ég vil gera grein fyrir ástæðu þess að ég styð álit meiri hlutans. Við gerum það reyndar tveir Miðflokksmenn, sá sem hér stendur og hv. þm. Jón Þór Þorvaldsson sem sat sem varamaður þegar frá þessu máli var gengið 17. maí sl.
Meginástæðurnar eru tvær, annars vegar sú að í ljósi þess að hér er um að ræða unga atvinnugrein en sem á framtíðina fyrir sér, ef rétt er á málum haldið, sé gjaldtöku stillt í hóf, eins og það er orðað, til að byrja með, til að rekstrarleyfishafar hafi svigrúm til að þróa starfsemi sína og byggja upp rekstur sinn. Þetta er þýðingarmikið atriði. Ég vil undirstrika og árétta að þessi grein getur reynst mikilvæg, ekki bara fyrir þau samfélög þar sem hún er stunduð, fyrir atvinnu- og tekjusköpun þeirra sem við hana starfa og þeirra sem þeim tengjast með ýmsum hætti. Auðvitað munu þessi fyrirtæki leggja sitt af mörkum til að skapa tekjur fyrir ríkissjóð og allt það en það er sýnt að fari svo sem horfir, þ.e. að þessi grein vaxi, vonandi með sjálfbærum hætti, getur hún skilað miklu til samfélagsins í þessu tilliti. Við höfum þegar rætt tengt frumvarp þar sem mikil áhersla er lögð á að búa þannig um hnúta að starfsemin sé í fyllsta samræmi við kröfur um vernd náttúrunnar og þarf ekki að endurtaka það.
Hitt meginsjónarmiðið sem leiðir til þess að ég styð álit meiri hlutans er það sem kemur fram í álitinu, að meiri hlutinn telur mikilvægt, með leyfi forseta, „að gjaldtaka vegna fiskeldis í sjó sé ávallt byggð á sanngjörnum og málefnalegum grunni þar sem litið er til umhverfisþátta og jafnvægis í tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga“.
Þar kemur fram mjög mikilvægt atriði, frú forseti, að á yfirstandandi ári er von á hvítbók um gjaldtöku í fiskeldi í Noregi. Áfram segir, með leyfi forseta:
„Gera má ráð fyrir að þar komi fram gagnlegar upplýsingar og eðlilegt að fram fari heildarendurskoðun gjaldtöku hér á landi. Þá telur meiri hlutinn einnig rétt að við þá endurskoðun verði litið til fyrirkomulags gjaldtöku í Færeyjum.“
Það er náttúrlega eðlilegt, frú forseti, að við lítum í þessu efni til reynslu nágrannaþjóðanna. Í Noregi er árlega framleitt meira en milljón tonn, líklega 1.100.000 tonn eða þar um bil, og Færeyingar eru með mjög umtalsverða starfsemi á þessu sviði. Þegar við í hv. nefnd lögðum land undir fót og fórum til Noregs til að kynna okkur fiskeldi þar var flestum spurningum okkar sem lúta að gjaldtökunni svarað með vísan til þess að í gangi væri mikil úttekt og athugun. Það er þessi hvítbók og þess vegna er rétt að sjá hana þegar hún kemur og draga lærdóma af henni.
Í áliti meiri hlutans er tekið fram, með leyfi forseta:
„Meiri hlutinn leggur áherslu á að við endurskoðunina verði sérstaklega horft til þess að hafa öflugar hagrænar ívilnanir“ — eins og það heitir — „sem hvetji til umhverfisvænni framleiðslu og horft til tekjuskiptingar á milli ríkis og sveitarfélaga, en um leið tryggt að gjaldið standi undir nauðsynlegu eftirliti.“ — Ég legg ríka áherslu á að það sé svo. — „Þá þarf að horfa til heildarumfangs allra gjalda sem á greinina eru lagðar, hvaða áhrif þau hafa á uppbyggingu á frumbýlingsárunum og hvenær rétt sé að þau taki gildi að fullu. Leggur meiri hlutinn til að endurskoðun á fyrirkomulagi gjaldtöku verði lokið 1. janúar 2021.“
Það er afmarkað í tíma. Miðað við að hvítbókin kom út í ár er næsta ár undir í því að vega þetta mál og skoða og að þeirri endurskoðun verði lokið þá áður en þessu kjörtímabili verður lokið.
Frú forseti. Með þau svæði sem eru ætluð til fiskeldis felur úthlutun starfsleyfa í sér ráðstöfun á takmarkaðri auðlind. Það er eðlilegt að fyrir afnot af slíkri auðlind komi greiðsla. Það er ósköp einfaldlega þannig með þetta mál að það er ekki efni að svo komnu, leyfi ég mér að segja, til að kveða nákvæmlega á um slíka gjaldtöku meðan til að mynda ólokið er þeirri úttekt sem boðuð hefur verið í Noregi og er byggð á hinni miklu reynslu Norðmanna í þessum efnum.
Ég vil til áréttingar nefna tvö eða þrjú atriði sem er að finna í þessu nefndaráliti og ég tel hafa þýðingu. Hér segir:
„Nefndinni var bent á að nauðsynlegt væri að í gjaldtöku fælust hvatar fyrir rekstrarleyfishafa til að stunda umhverfisvænni framleiðslu.“
Það er eiginlega alveg sjálfsagt mál og liggur í augum uppi að það er eðlilegur þáttur að þegar verið er að fjalla um starfsemi sem hefur áhrif á umhverfi sitt í ýmsu tilliti séu fjárhagslegir hvatar innbyggðir í lagaumgjörðina þannig að fyrirtækin grípi þann kost hverju sinni sem umhverfisvænstan má telja. Miklar vonir eru bundnar við að það verði tækniframfarir á komandi árum þannig að unnt verði að nota lokaðar kvíar í meira mæli en nú þykir fært. Þar sem aðstæður eru til er auðvitað best að þessi starfsemi sé uppi á landi. Það er bæði gott og nauðsynlegt að þessir fjárhagslegu hvatar séu innbyggðir. Það er gert með skýrum hætti í þeirri lagaumgjörð sem við erum að fjalla um hér.
Sömuleiðis er rétt að nefna þá gagnrýni sem heyrðist á vettvangi funda hv. atvinnuveganefndar, að of lágt hlutfall fyrirhugaðs gjalds myndi renna til sveitarfélaganna. Auðvitað eru alltaf álitamál í þessum efnum. Sömuleiðis var gagnrýnt fyrirkomulag úthlutunar úr hinum fyrirhugaða fiskeldisjóði. Um þetta var ítarlega fjallað og í áliti meiri hlutans segir án þess að ég vilji orðlengja um of „að fyrirhuguð gjaldtaka er fyrir afnot af hafsvæði sem ekki lýtur beinum eignarrétti, enda liggi sjókvíar á hafsvæði sem er utan umráðasvæðis sveitarfélaganna. Sveitarfélögin eru því ekki svipt réttindum og ekki vegið að sjálfstæði þeirra.“
Eins og meiri hlutinn gerir er auðvitað eðlilegt að taka undir þau sjónarmið að tryggja þurfi að sveitarfélögin fái hlutdeild í þeim tekjum sem skapast, enda er gert ráð fyrir því í frumvarpinu eins og þarna segir:
„Meiri hlutinn bendir á að hlutverk fiskeldissjóðs er að styrkja uppbyggingu innviða þar sem fiskeldi er stundað. Með því er ætlunin að styrkja stoðir atvinnulífs sveitarfélaganna og hjálpa til við uppbyggingu samfélagsins.“
Eins og fram kemur í áliti meiri hlutans er fiskeldi enn að byggjast upp og er á frumstigi sem atvinnugrein. Í senn þarf að veita henni aðhald og stuðning en eins og fram kemur í álitinu telur meiri hlutinn mikla kosti felast í því að hafa sérstakan fiskeldissjóð sem haldi utan um þær tekjur sem skapist og úthluti í samræmi við umsóknir.
Með leyfi forseta ætla ég að vísa áfram í álitið þar sem segir:
„Þannig verði jafnræðis gætt við úthlutun úr sjóðnum og skýr yfirsýn fáist yfir atvinnugreinina og hægt verði að meta hvar þörf fyrir uppbyggingu er mest.“
Frú forseti. Þetta er yfirferð yfir málið. Ég vildi nota þetta tækifæri til að skýra mína afstöðu í þessum efnum. Auðvitað mætti hafa um það lengra mál en sem stendur mun ég gæta hófs í þeim efnum.