149. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2019.

rannsókn kjörbréfs.

[13:51]
Horfa

Forseti (Bryndís Haraldsdóttir):

Borist hefur bréf frá starfandi formanni þingflokks Viðreisnar um að 7. þm. Reykv. n., Þorsteinn Víglundsson, geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því er óskað eftir að í dag taki Jarþrúður Ásmundsdóttur sæti á Alþingi en hún er 3. varamaður á lista Viðreisnar í kjördæminu. Varamenn ofar á lista hafa boðað forföll.

Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Jarþrúði Ásmundsdóttur. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kjörbréfið.