149. löggjafarþing — 123. fundur, 14. júní 2019.
rannsókn kjörbréfs.
Virðulegi forseti. Eins og fram kom í máli forseta hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd komið saman til að fara yfir kjörbréf Jarþrúðar Ásmundsdóttur, 3. varaþingmanns Viðreisnar í Reykv. n., frá landskjörstjórn. Varð það samhljóða niðurstaða nefndarinnar að gera ekki athugasemdir við kjörbréfið.