endurskoðendur og endurskoðun.
Frú forseti. Ég þakka hv. formanni efnahags- og viðskiptanefndar fyrir þessa ágætu ræðu. En nú langar mig til að spyrja vegna þess að ég á ekki sæti í þessari nefnd en hef hins vegar heyrt af því undanfarið að löggiltir endurskoðendur með áratugareynslu og flekklausan feril hafa orðið fyrir óþægindum og vantrausti út af þeim reglum sem hafa verið settar inn, m.a. með skipan endurskoðendaráðs. Mig langar hreinlega til að spyrja hv. þingmann hvort eitthvað hafi verið gert til að koma til móts við þann hóp sem hefur ekki tök á því, sökum smæðar fyrirtækjanna sem viðkomandi reka, að ráða til sín aðila sem eru, innan sviga eða gæsalappa, „góðkenndir eða viðurkenndir“ af þessum reglum.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort eitthvað hafi verið gert til að koma til móts við þennan hóp, sem er þó nokkuð stór og sinnir aðallega þjónustu við smærri fyrirtæki, einstaklinga í atvinnurekstri og einstaklinga bara út af fyrir sig. Það er alveg ljóst að ef þessir smáu aðilar þyrftu að undirgangast þessar reglur að fullu yrði þjónusta þeirra það dýr að það væri ekki á færi smærri aðila eins og einstaklinga, húsfélaga og minni fyrirtækja, að fá þessa þjónustu þeirra eða nýta sér.
Mig langar að spyrja hv. þingmanninn: Hefur eitthvað verið gert til þess að huga að réttindum og rétti þessara einstaklinga sem þarna um ræðir?