149. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2019.

endurskoðendur og endurskoðun.

312. mál
[14:08]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að auka leti mína með því að koma því á framfæri sem ég spurði um. Eins og ég sagði er ég ekki nefndarmaður í þessari nefnd og hef þess vegna ekki gaumgæft þetta mál alveg sérstaklega og það var eiginlega ekki fyrr en að ég áttaði mig á því að það var virkilega hér á dagskrá til afgreiðslu að það rifjaðist upp fyrir mér ástandið, sú staða sem þessi hópur sem ég var að tala um áðan hefur verið settur í. Þingmaðurinn getur fundið að því eins mikið og hann vill að ég hafi ekki lesið þetta til enda. Ég kann hins vegar á það að þessum aðilum hefur verið bent á að fara til ráðuneytisins til að fá lausn sinna mála. Frómt frá sagt, hv. þingmaður, hefur það ekki gengið mjög vel. Það hefur ekki gengið hægt, eða fyrirgefðu, það hefur ekki gengið hratt fyrir sig, ætlaði ég að segja. Þeir hafa ekki fengið skýr og efnisleg svör í viðskiptum sínum við ráðuneytið einmitt út af þessu.

Þannig að ef það er svo að hv. efnahags- og viðskiptanefnd eða meiri hluti hennar hefur komist niður á eitthvert plan sem virkar fyrir þennan hóp sem ég var að ræða um núna, þá er ég náttúrlega mjög ánægður að heyra það. En mig langar eiginlega bara til þess að fá einhverja fullvissu um það. Hafandi ekki lesið allt nefndarálitið, eins og hv. þingmaður benti á, langar mig bara til að fá fullvissu um að þarna sé komin leið sem komi til með að virka fyrir þennan hóp sem, eins og ég sagði áðan, hefur flekklausan feril að baki, áratugareynslu og hefur núna seinni árin lent í því að vera litinn hornauga af þeim sem síst skyldi í þessum bransa.

Þannig að ég vil bara biðja hv. þingmann að útskýra það fyrir mér enn þá betur hvernig þeirra staða sé tryggð með þessu frumvarpi eins og það lítur út núna.