endurskoðendur og endurskoðun.
Frú forseti. Nú er auðvitað hvorki ég né hv. þingmaður í þeirri stöðu að geta gefið út einhverjar tryggingar um að allt gangi eftir eins og maður vill sjá. Það er hins vegar verið að tryggja það að menn geti farið í stjórnsýslukæru vegna niðurstöðu stjórnsýslunefndar. Ef það reynist svo að ráðuneytið sinnir ekki erindinu, leysir ekki úr því verkefni sem því er falið með stjórnsýslukærunni, þá eiga menn auðvitað ekki aðra leið færa, líklegast, heldur en dómstóla.
Þannig að varðandi endurskoðendur: Þannig er það um fjölda annarra atriða sem við erum að fást við hér á þingi og úti í samfélaginu. Hv. þingmaður hlýtur að átta sig á því að slíka tryggingu eins og hv. þingmaður er að fara fram á að ég veiti er ég er ekki þess umkominn að veita, ekki frekar en hv. þingmaður.