endurskoðendur og endurskoðun.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og hans yfirferð. Ég hef eiginlega, má segja, eina spurningu til hv. þingmanns sem varðar endurmenntun. Ég fór yfir umsagnir við frumvarpið og sá þá áhyggjur manna af því að það eru „tímafrekar og kostnaðarsamar kröfur um endurmenntun án þess að gerðar séu kröfur um hverju hún eigi að skila,“ segir hér í einni umsókn, með leyfi forseta. Það er talað um að þetta þurfi að skilgreina mun betur. Ég hefði gjarnan viljað heyra frá hv. þingmanni hvað þetta varðar. Hér er talað einmitt um skilyrði fyrir því að eðlilegt væri að sú endurmenntun færi fram hjá viðurkenndri menntastofnun.
Síðan er í frumvarpinu lagt til að auka útgjöld vegna tilfallandi gæðaeftirlits endurskoðenda og innheimta þá tilfallandi sértekjur til að tryggja fjármögnun eftirlitsaðila og tryggja að hún sé „óháð ótilhlýðilegum áhrifum frá endurskoðendum og endurskoðendafyrirtækjum.“
Mig langaði að fá einnig nánari skilgreiningar á þessu hjá hv. þingmanni, þ.e. endurmenntuninni og síðan þeim útgjöldum sem verða vegna gæðaeftirlits.