endurskoðendur og endurskoðun.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Sú umsögn sem ég vitnaði hér í er frá Gunnari Þór Ásgeirssyni, löggiltum endurskoðanda. Nú er það ekki svo að ég sé að gagnrýna það að endurmenntun eigi að vera til staðar, síður en svo, hún er náttúrlega algjörlega nauðsynleg, hv. þingmaður. Það sem ég vildi fá hér fram er að það kemur hér gagnrýni á þetta frumvarp um að það sé ómarkvisst og það þurfi að skilgreina þetta miklu betur. Þetta var punkturinn sem ég var að vitna til.
En ég vildi líka aðeins kannski koma að því sem kemur fram í annarri umsögn, frá Einari S. Hálfdánarsyni, löggiltum endurskoðanda, þar sem hann talar um að það sé ekki við hæfi að leggja niður heitið löggiltur endurskoðandi, því það undirstriki mikilvægi starfsins að endurskoðandi vísi til þess að hann hafi löggildingu til starfsins. Ég vil taka heils hugar undir það. Auk þess tekur umsagnaraðilinn undir það sem ég nefndi áðan varðandi endurmenntun, að hún væri ómarkviss. Þannig að hérna höfum við tvær umsagnir þar sem er verið að gagnrýna endurmenntunina sem ómarkvissa.
Ef hv. þingmaður gæti kannski farið aðeins nánar yfir þetta. Síðan er þetta með heitið, hvers vegna sé verið að fara í þessar breytingar hvað það varðar. Hér segir einmitt (Forseti hringir.) þessi aðili að hvarvetna sem hann þekki til sé „einmitt talið undirstrika mikilvægi starfsins að endurskoðandi vísi til þess að hann hafi löggildingu til starfans“. Ég tek heilshugar undir það.