149. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2019.

endurskoðendur og endurskoðun.

312. mál
[14:35]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta langt. Prýðisgóð ræða hv. þm. Þorsteins Sæmundssonar varð til þess að ég taldi tilefni til að koma hingað upp og segja nokkur orð um gang þessa máls og jafnframt taka undir beiðni hans um að málið fari aftur til nefndarinnar og að þau atriði sem hv. þingmaður rakti í ræðu sinni verði skoðuð þar milli umræðna.

Þetta er eitt af þeim málum sem kannski vekja ekki eins mikla athygli og skyldi þar sem þau virðast svo tæknileg. Fyrir vikið hættir okkur þingmönnum gjarnan til að reiða okkur á upplýsingar frá kerfinu um hvernig þurfi að bregðast við. Þetta er sérstaklega algengt með innleiðingarmál sem koma að utan. Þar hefur raunin allt of oft verið sú að menn hafa einfaldlega valið einfaldari kostinn, þann að láta í raun segja sér hvernig hlutirnir þurfi að vera. Afleiðingin af þeirri aðferð hefur líka allt of oft verið sú að gera regluverk og lög á Íslandi flóknari, erfiðari viðfangs fyrir þá sem þurfa að starfa eftir þeim.

Hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson nefndi í ræðu sinni stöðu litlu endurskoðunarfyrirtækjanna og einyrkjanna. Það eru einmitt slíkir aðilar sem fara oft á tíðum einna verst út úr þessu. Stóru fyrirtækin hafa þó burði til að laga sig að sífellt flóknara regluverki og bregðast við því. Þau geta auðvitað líka fjármagnað slík viðbrögð miklu betur. Þau eru jafnvel með heilu lögfræðideildirnar og annað starfsfólk sem getur brugðist við síaukinni lagasetningu og síflóknara regluverki, meðan einyrkjarnir hafa engan veginn sambærilega aðstöðu til þess. Það væri mikil synd ef sjálfstætt starfandi aðilar á þessu sviði teldu ekki vera rekstrargrundvöll fyrir starfsemi sinni, hvort sem það eru einyrkjar eða nokkurra manna fyrirtæki. Því það er rétt sem hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson fór yfir hér áðan: Slík fyrirtæki gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki fyrir ýmiss konar smárekstur í samfélaginu, jafnvel húsfélög, eins og kom fram í máli hv. þingmanns.

Almennt held ég að löggjafinn þurfi að fara að huga miklu betur að því hversu hlutfallslega illa þessar síauknu flækjur í lagasetningu bitna á minni aðilum. Þetta er að sjálfsögðu ekki bara bundið við endurskoðun eða þá sem starfa á tengdum sviðum heldur búa í rauninni öll smærri fyrirtæki landsins við sífellt meira íþyngjandi regluverk. Ég vona að við getum á einhvern hátt breytt vinnubrögðum, breytt því hvernig við nálgumst þessar lagaflækjur allar, ekki hvað síst þær sem eru sendar að utan, með það að markmiði að gera minni fyrirtækjum auðveldara að starfa og þannig auðvitað auka nýsköpun. Ein helsta hindrun nýsköpunar er sá frumskógur reglugerða og laga sem þeir sem eru að hefja nýjan atvinnurekstur standa frammi fyrir. Ef við bregðumst ekki við þessari þróun horfum við fram á áframhaldandi samþjöppun, ekki bara á þessu sviði heldur á svo mörgum sviðum atvinnulífsins.

En meginerindi mitt hingað upp í þessa ræðu var að bregðast við athugasemdum hv. þm. Þorsteins Sæmundssonar og taka undir áskorun hans um að málið fari aftur til nefndar milli umræðna.