loftslagsmál.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir ræðuna en í henni eru ýmis atriði sem ég fæ vonandi svör við. Ég er sammála því sem hv. þingmaður sagði í ræðu sinni um nauðsyn þess að ráðast í alvöruaðgerðir en ekki að vera með endalausar yfirlýsingar, orðagjálfur, skipan starfshópa o.s.frv. Ég tek fyllilega undir með honum í þeim efnum og hef áður sagt, bæði í ræðustól og skrifað um það og sagt víðar, að við þurfum að ráðast í alvöruaðgerðir.
Jafnframt er ég sammála honum um það að mjög líklega höfum við undanfarið á Íslandi lagt ofuráherslu á endurheimt votlendis í aðgerðum til að sporna gegn loftslagsbreytingum þegar, eins og hv. þingmaður nefndi réttilega, við erum ekki með raunverulegar niðurstöður um nákvæmlega hverju það skili okkur í þessari mikilvægu baráttu.
En mig langar til að fá svör frá hv. þingmanni um hvernig hann sjái fyrir sér aðgerðir sem eru einmitt af þeim toga sem hann nefnir hér, alvöruaðgerðir sem myndu skila raunverulegum árangri. Það væri áhugavert að heyra tillögur og vangaveltur hv. þingmanns í þeim efnum.