149. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2019.

rannsókn kjörbréfs.

[13:36]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf):

Herra forseti. Eins og fram kom í máli hæstv. forseta hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd komið saman til að fara yfir kjörbréf Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, 3. varaþingmanns Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi, frá landskjörstjórn. Varð það samhljóða niðurstaða nefndarinnar að gera ekki athugasemd við kjörbréfið.