fiskeldi.
Herra forseti. Öll starfsemi sem fer fram í náttúru snýst um náttúruna og er þar af leiðandi spurning um náttúruvernd. Náttúruvernd er ekki andstæða nýtingarstefnu heldur á hún að vera grundvöllur allrar nýtingarstefnu. Náttúruvernd er nýtingarstefna og andstæða nýtingarstefnu er eyðingarstefna sem gengur út á að tæma auðlindir fyrir stundargróða. Sú stefna hefur allt of lengi verið ráðandi hér á landi í umgengni okkar við landið, hvort sem um er að ræða landbúnaðinn, sem hefur einkennst af frámunalegri ofbeit, eða stóriðjustefnuna. Náttúran er ekki til fyrir okkur og vegna okkar, heldur hefur náttúran gildi í sjálfri sér. Gjafir náttúrunnar eru ómælanlega og mannlegt hugvit líka þegar kemur að því að nýta þessar gjafir og njóta þeirra.
Fiskeldi er umhverfismál og það ber að nálgast þannig en ekki á forsendum atvinnuuppbyggingar. Að vísu varðar það um leið mannlegt umhverfi, samfélagslegt umhverfi, lífskjörin á þeim stöðum þar sem uppbygging á sér stað og er fyrirhuguð, en um leið er í húfi lífríki landsins sem við, íbúar landsins, höfum tilteknar skyldur við sem okkur ber að uppfylla. Við megum ekki raska um of því vistkerfi sem við athöfnum okkur í eða stuðla að óafturkræfum skaða, svo sem fábreytileika eða jafnvel útdauða tegunda. Í því sambandi má minna á skuldbindingar Íslendinga samkvæmt þjóðarétti við samning Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni frá árinu 1992 sem er oft kenndur við Ríó.
Þetta er ekki hægt að leiða hjá sér í lagasetningu þegar þessari atvinnugrein er sett umgjörð heldur verður það að vera leiðarljós löggjafans. Fiskeldi er vissulega mikilvæg grein og matvælaframleiðsla verður æ mikilvægari á tímum síaukinnar meðvitundar um sjálfbærni en þá verður sú matvælaframleiðsla jafnframt að standast allar kröfur um sjálfbærni. Fiskeldi hefur þegar verið mikil lyftistöng fyrir byggðir sem eiga undir högg að sækja út af fábreyttu atvinnulífi en lagaumgjörðin getur aldrei orðið á þeim forsendum einum. Þar hljóta umhverfissjónarmið, varúðarreglan, ævinlega að vera í 1. sæti. Hér er viðkvæmt jafnvægi í náttúrunni. Hér má ekki taka áhættu. Þetta er líka stefna ríkisstjórnarinnar eins og ég skil hana, en í stjórnarsáttmála segir beinlínis, með leyfi forseta:
„Fiskeldi er vaxandi atvinnugrein sem felur í sér tækifæri til atvinnuuppbyggingar en þarf að byggja upp með ýtrustu varúð í samræmi við ráðgjöf vísindamanna þannig að líffræðilegri fjölbreytni verði ekki ógnað.“
Þetta er alveg skýrt.
Hv. atvinnuveganefnd hefur að mörgu leyti unnið gott starf og bætt þetta frumvarp um margt. Hún hefur tekið meira mið af náttúruverndarsjónarmiðum en áður gætti í frumvarpinu en svo hrapallega tókst til að hæstv. umhverfisráðherra hafði enga aðkomu að gerð frumvarpsins á sínum tíma. Breytingartillögur nefndarinnar fara í þá átt að auka varúðina. Má þar sérstaklega nefna lögfestingu áhættumats erfðablöndunar. Lagt er til að Hafrannsóknastofnun verði gert skylt að vinna áhættumat erfðablöndunar þar sem fram komi það magn frjórra laxa sem leyfilegt er að ala í sjókvíum hverju sinni. Samkvæmt gildandi lögum ræðst heildarframleiðsla á hverju svæði af útgefnu burðarþolsmati og því framleiðslumagni sem kveðið er á um í einstökum rekstrarleyfum. Markmiðið með áhættumatinu er að koma í veg fyrir hugsanleg spjöll á villtum nytjastofnum og gerir áhættumatið samkvæmt því ráð fyrir að óafturkræfum skaða sé valdið eða að sjálfbærri nýtingu villtra stofna sé stefnt í hættu fari fjöldi eldislaxa í veiðivatni yfir tiltekin viðmiðunarmörk.
Í nefndaráliti meiri hlutans segir, með leyfi forseta:
„Fyrir nefndinni komu fram ýmsar athugasemdir við áhættumat erfðablöndunar. Lýstu gestir yfir miklum áhyggjum af áhrifum erfðablöndunar eldislax við villta nytjastofna og bentu á að rannsóknir hafi sýnt að slík erfðablöndun hafi neikvæð áhrif á lífsferil og möguleika villtra stofna til að bregðast við breytingum í umhverfi til lengri tíma litið vegna erfðabreytinga. Komu jafnframt fram sjónarmið um að áhyggjur af erfðablöndun væru óþarfar vegna skertrar hæfni eldisfiska til að tímga sig í náttúrunni, auk þess sem fullyrðingar um áhrif erfðablöndunar væru ofmetin að einhverju leyti.“
Herra forseti. Hér hefði mátt kveða skýrar að orði, taka eindregnari afstöðu í þessu álitamáli. Nefndin vísar á að áhættumat erfðablöndunar verði stórbætt og haft á vegum óháðs aðila, að rekstrarleyfishafar skuli nota ljósastýringu til að reyna að hamla því að fiskar sleppi og nota stærri seiði sem miði að því að seinka kynþroska. Það er talað um stjórnvaldssektir líka og bætt eftirlit á vegum Matvælastofnunar. Þetta breytir samt ekki því grundvallaratriði að hér er um að ræða frjóan, norskan laxastofn sem er framandi tegund í íslensku lífríki. Dæmin sanna að fiskar sleppa alltaf í einhverjum mæli út í náttúruna og geta borist í ár þar sem þeir geta blandast villtum stofnum sem hér hafa þróast og þroskast á þúsundum ára og hafa tiltekna eiginleika sem hætt er við að spillist við blöndun.
Nokkuð hefur verið rætt um samráðsnefndina sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Hún er skipuð til fjögurra ára í senn og þá fulltrúum hagsmunaaðila, vísindamanna og stjórnmálamanna í héraði og skipar svo ráðherra oddamann eftir sínu höfði. Þetta er þannig pólitísk nefnd þar sem auðvelt er að mynda meiri hluta gegn sjónarmiðum vísindalegrar varfærni og náttúruverndar.
Hlutverk nefndarinnar er m.a. að leggja mat á forsendur og úrvinnslu þeirra gagna sem áhættumat erfðablöndunar byggist á, þ.e. að hagsmunaaðilar og pólitískt skipaðir fulltrúar eiga að fá vettvang til að krukka í niðurstöður og hræra í forsendum. Það er mjög hættulegt að hagsmunaaðilar fái slíkan vettvang til að hafa áhrif á störf vísindamanna og til þess fallið að draga úr sjálfstæði þeirra. Með þessum hætti geta hagsmunaaðilar grafið undan niðurstöðum vísindamanna séu þær óhentugar. Samkvæmt íslenskum hefðum getur verið mjög hætt við að svona samráðsnefnd verði afskiptasöm og frek og að menn taki þar að líta á sig sem nokkurs konar fiskeldisráð sem hafi yfir vísindamönnum að segja.
Þó að Hafrannsóknastofnun eigi síðasta orðið samkvæmt frumvarpinu og eigi að taka rökstudda afstöðu til álitsins og gera breytingar á tillögu sinni, þyki henni ástæða til, fer ekki á milli mála að hér er hægt að skapa verulegan þrýsting og hlutast til um störf vísindamanna. Meiri hluti hv. atvinnuveganefndar fellst á að óeðlilegt sé að ekki sé fulltrúi náttúruverndarsjónarmiða í þessari samráðsnefnd en í stað þess að stinga upp á að fulltrúi óháðra náttúruverndarsamtaka hafi þar fulltrúa er lagt til að umhverfis- og auðlindaráðuneytið tilnefni fulltrúa. Það er eins og meiri hluti hv. atvinnuveganefndar standi í þeirri trú að Guðmundur Ingi Guðbrandsson verði umhverfisráðherra um aldur og ævi eða annar slíkur maður sem við vitum öll að lítur á það sem hlutverk sitt að gæta hagsmuna náttúruverndar og umhverfis. En það er alls ekki fjarlægur möguleiki að í stól umhverfisráðherra setjist einhvern tímann stjórnmálamaður sem t.d. vill ganga erinda fiskeldisfyrirtækja og þá væri viðkomandi vís til að haga skipun sinni í samráðsnefndina samkvæmt því. Ég mæli eindregið með því að þingheimur samþykki tillögu minni hluta atvinnuveganefndar þar sem talað er um að tryggja verði vísindafólki og Hafrannsóknastofnun nauðsynlegt svigrúm til að byggja upp faglegt áhættumat, enda sé trúverðugleiki greinarinnar í húfi. Leggur minni hlutinn til að áhættumat erfðablöndunar verði sérstaklega undanskilið ráðgjöf stjórnvalda, auk þess sem fulltrúi óháðra náttúruverndarsamtaka verði í nefndinni frekar en fulltrúi umhverfisráðherra.
Minni hlutinn ræðir líka nokkuð í sínu vandaða áliti um að Hafrannsóknastofnun þurfi vissulega á vísindalegu aðhaldi að halda og að aðferðafræði hennar sæti faglegri rýni. Leggur minni hlutinn því til að skipuð verði nefnd óháðra vísindamanna á sviði fiskifræði, stofnerfðafræði og/eða erfðafræði til að rýna aðferðafræði Hafrannsóknastofnunar við mat á burðarþoli og gerð áhættumats. Sú nefnd skili áliti sínu og tillögum til ráðherra fyrir 1. maí 2020 og ráðherra skili Alþingi í kjölfarið skýrslu um niðurstöður nefndarinnar og viðbrögð við þeim.
Þessi tillaga er nánast samhljóða tillögu meiri hlutans en minni hlutinn telur mikilvægt að nefndin verði skipuð erlendum, óháðum aðilum og leggur því til framangreinda breytingu. Þetta finnst mér skynsamleg tillaga.
Hv. atvinnuveganefnd hefur sem sé unnið ágætt starf að mörgu leyti en það breytir engu um það, eftir sem áður, að það stendur til að vera með stórfellt fiskeldi í opnum sjókvíum. Í breytingartillögum minni hlutans er að finna hvata til að hraða því að skipt verði yfir í lokaðar kvíar, enda hefur átt sér stað hröð þróun og aukin nýsköpun á þessu sviði, ekki síst í Noregi. Mikill kraftur hefur líka verið í rannsóknum á framleiðslu geldfisks og hefjast tilraunir með slíkt eldi í sjó á Austfjörðum fljótlega. Til að ýta undir þessa þróun leggur minni hlutinn til að einnig verði gjöld vegna umhverfissjóðs sjókvíaeldis hækkuð fyrir opnar kvíar.
Herra forseti. Náttúruvernd er nýtingarstefna og öll önnur nýtingarstefna þarf að hafa náttúruvernd að leiðarljósi. Hagsmunir náttúruverndar og samfélagsins fara saman, líka hér í þessu máli, því að það varðar miklu fyrir samfélagið að stöðugleiki og sjálfbærni ríki í fiskeldinu. Sá stöðugleiki fæst með því að setja hagsmuni náttúrunnar í öndvegi. Sé gengið á umhverfið er gengið á fiskeldið sem hefur svo áhrif á samfélagið. Það er brýnt að vakandi auga sé haft með því að stórfellt fiskeldi á norskum, frjóum laxi hafi ekki áhrif á villta stofna hér við land og að úrgangur frá starfseminni hafi ekki áhrif á lífríki sjávar. Í því sambandi er rétt að minna á að ein gjöfulustu fiskimið heims eru skammt undan fyrir vestan þó að gróðinn af nýtingu þeirra hafi ekki nýst samfélögunum þar vestra sem sýnir hversu viskulega okkur hefur tekist að haga málum í fiskveiðistjórn okkar.