fiskeldi.
Herra forseti. Í öllum atvinnurekstri sem tengja má einhvers konar frumvöruframleiðslu vegast á náttúrunytjar og náttúruvernd. Þannig er að nefndarumsögn hv. umhverfis- og samgöngunefndar um svokallað fiskeldisfrumvarp, sem hér er til umræðu, er mér hugleikið vegna þess að ég tók þátt í að semja það. Þessi umsögn fjallar fyrst og fremst um umhverfismál eins og það átti að snúa við nefndinni. Ég ætla að leggja út af umsögninni, ekki að lesa hana alla, og gera grein fyrir meginhluta innihaldsins.
Við fengum átta gesti fyrir nefndina og hlustuðum gaumgæfilega á það sem þeir höfðu að segja. Í búgrein á borð við fiskeldi er megináskorun fólgin í því að finna og ástunda jafnvægið, sem ég minntist á, milli náttúrunytja og náttúruverndar. Fiskeldi í opnum sjókvíum er háð mörgum umhverfisþáttum og veldur álagi á þá, bæði nær og fjær. Að mati nefndarinnar er eðlilegt að gera kröfu um að slíkt fiskeldi sé sem sjálfbærast, að það þróist jafnt og þétt til fullkomlega rekjanlegrar sjálfbærni og með sem allra minnstum umhverfisáhrifum. Þau verða alltaf einhver, sama hvernig fiskeldið er, hvort sem það er á landi eða í sjó, í lokuðum eða opnuðum kvíum.
Líkt og kom fram á fundi nefndarinnar hafa margvísleg álitamál vaknað við uppbyggingu fiskeldis á Íslandi og vísindamenn jafnt sem hagaðilar, þ.e. talsmenn fiskeldisfyrirtækja og laxveiði, rétthafa og náttúruverndarsamtaka, eru í grunninn mjög ósammála um efnisatriði, sum þeirra, ekki öll, sem miklu varðar um þróun þessa atvinnuvegar. Það er ekki óalgengt í stjórnmálum á Íslandi að þar sé nánast stál í stál og því er mjög erfitt og vandasamt fyrir fagnefnd þingsins að fóta sig í raun og veru. Nefndin telur engu að síður brýnt að umhverfisvernd verði leiðandi við uppbyggingu fiskeldis til jafns við félagsleg sjónarmið. Um það eru aðilar í sjálfu sér sammála, en þegar kemur að ýmsum þáttum eru menn gríðarlega ósammála, það má orða það þannig. Varkárni við uppbyggingu eldisstöðva og tillit til skoðana og krafna sem miða að sem skilvirkastri náttúruvernd verður að vera haft að leiðarljósi um allar ákvarðanir um rekstur og þróun. Það á við um öflugt innra eftirlit eldisstöðva, jafnt sem skilvirkt og sterkt eftirlit opinberra aðila. Hvort tveggja er lykilatriði.
Nefndin leggur í sinni umsögn áherslu á nokkur atriði sem hún telur mikilvægust í þessu tilliti. Í umsögninni eru þrír kaflar sem lúta að þeim, sá fyrsti er um áhættumat erfðablöndunar og vöktun og mótvægisaðgerðir þess vegna. Þá er það skýrt að nefndin telur sig ekki vera þess umkomna að leggja mat á gæði þess áhættumats eða gagnrýni vísindamanna á það. Það er meira að segja þannig að í þessum efnum eru vísindamenn ekki einu sinni sammála. Sú vísindalega þekking sem er til staðar í hv. umhverfis- og samgöngunefnd er ekki þessleg að nefndin geti farið að taka þar mjög ákveðna afstöðu nema þá þannig að hún minni bara á þá þætti sem geta haft þarna áhrif til góðs, hvernig sem menn vilja svo umgangast þetta áhættumat sem vísindamenn.
Þá er það lykilatriði að sólarhringsvöktun í rauntíma með bestu fáanlegum tækjum á að vera skylda fiskeldisfyrirtækja með opnar sjókvíar. Þótt unnið sé með spálíkön, eins og í þessu tilviki, eins og áhættumat er venjulega í upphafi þegar fiskeldi er að þróast, er mikilvægt þegar til lengri tíma er litið að þetta áhættumat verði byggt á rannsóknum og stöðugri vöktun. Við lítum svo á að það áhættumat sem núna er til staðar, áhættumat erfðablöndunar, eigi eftir að þróast, og batna skulum við segja, með tímanum. Styrkja verður eftirlit með sleppingum, jafnt eftirlit fyrirtækjanna sjálfra sem opinberra stofnana. Sleppi fiskur úr kvíum er þörf á mjög skýrum og árangursríkum mótvægisaðgerðum. Þá bendir nefndin einkum á reynslu frá Noregi. Þar er, eins og menn vita kannski, fiskeldi sem er núna 1,3 milljónir tonna á ári. Við erum með okkar 12.000–14.000 tonn á ári. Það merkir að það þarf að leita að strokulöxum og reynslan ber þess vitni að fiskarnir leita langoftast í nálægar ár þótt þeirra geti orðið vart í fjarlægum ám. Það eru til aðferðir við að leita uppi og fjarlægja þess konar aðkomufiska. Myndavélakerfi, sums staðar jafnvel ákveðnar tegundir af lokunum, beina fiskinum inn á eina rás og ef vart veður við fiska er gerður út mannskapur. Við getum kallað þá kafara, af því að þeir eru venjulega í blautbúningum, sem leita þessa fiska uppi og fjarlægja þá úr ánum. Þetta er gert með góðum árangri í löndum eins og Noregi. Slíkar mótvægisaðgerðir ber að þróa hér á landi að mati nefndarinnar og kosta m.a. með fé úr atvinnugreininni sjálfri.
Þegar kemur að vöktun á burðarþoli leggur nefndin áherslu á sem öflugasta vöktun á því ætlaða burðarþoli eldisstaða og eldissvæða sem er einn hornsteinn allra leyfisveitinga og reksturs. Rétt eins og með áhættumatið telur nefndin ekki að hún geti metið á raunhæfan hátt að hvaða marki burðarþolsmælingar og burðarþolsákvarðanir eru hafnar yfir vafa eða gagnrýni af sömu ástæðum og fyrr er getið. Það hefur einnig reynst erfitt að fá uppgefnar áreiðanlegar tölur um magn úrgangs frá helstu stærðum opinna sjókvía, jafn undarlegt og það hljómar. Engu að síður hvetur nefndin til þess að farið sé stranglega eftir fyrirliggjandi burðarþolsmati á hverju fiskeldissvæði og það endurskoðað og uppfært eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu.
Herra forseti. Nefndin áréttar mikilvægi þess að fylgst sé vandlega með uppsöfnun úrgangs á eldissvæðum með eins tíðum mælingum og unnt er og að ávallt verði gripið til ráðstafana þegar mörkum ásættanlegs úrgangs er náð. Tilfærsla kvía og álagshvíld botns undir þeim eftir tiltekinn notkunartíma er aðalaðferðin við að hamla gegn umhverfisspjöllum á sjávarbotni vegna fiskeldis. Strangt eftirlit og vöktun í sem næst rauntíma þar er líka lykill að því að aðferðin beri árangur. Þar kemur til að auknar rannsóknir, aukin gögn sem styrkja burðarþolsmatið og mótvægisaðgerðirnar, séu raunverulega nýttar. Nefndin hvetur til árvekni við víðtækt mat á umhverfisáhrifum reksturs allra fiskeldisstöðva og leggur áherslu á að með því móti sé mætt, með vísindalegum aðgerðum, þeim áhrifum sem af þessum rekstri verða. Það verði leitast við að lágmarka umhverfisáhrifin, t.d. líka á aðra atvinnustarfsemi eins og ferðaþjónustu og aðra matvælaframleiðslu á svæðinu.
Við nefndum aðeins laxalús og önnur sníkjudýr og má nefna þar að nefndin fagnar aukinni áherslu á innra eftirlit rekstraraðila með mánaðarlegri skýrslugjöf um ástand og heilsu og lúsina sem eflir mótvægisaðgerðir gegn sníkjudýrum og sjúkdómum og enn fremur nýjum reglugerðarheimildum sem settar verði í lög um varnir gegn fisksjúkdómum. Þá áréttar nefndin einnig að varnaraðgerðir gegn laxalús og öðrum sníkjudýrum séu umhverfisvænar, ekki sé verið að nota svokallað eitur heldur annaðhvort aðferðir sem eru byggðar á einhverjum umhverfisvænum efnum eða eins og menn hafa reynt fyrir sér með öðrum fiskum sem éta lýsnar af laxinum.
Í niðurlagi umsagnarinnar fagnar nefndin ákvæðum og hvötum í frumvarpinu og í framlögðu frumvarpi einnig um gjaldtöku í fiskeldi sem ýta undir umskipti úr hefðbundnu eldi í opnun kvíum yfir í eldi með geldfisk eða eldi í lokuðum kvíum í sjó því að þangað eigum við að sjálfsögðu að stefna.
Umhverfissjóður sjókvíaeldis er efldur samkvæmt frumvarpinu og nefndin lýsir sérstakri ánægju með þá ráðstöfun. Loks fagnar nefndin samráðsnefnd um fiskeldi sem sett verður á fót. Við gerum þar með ekki eða a.m.k. get ég sagt persónulega að ég geri ekki ráð fyrir því að fyrir fram sé hægt að gera ráð fyrir að þótt slík nefnd sé skipuð bæði vísindamönnum og hagaðilum muni hagaðilar hunsa vísindin. Við skulum bíða eftir reynslunni af því áður en við fullyrðum það.
Með frumvarpinu eru einnig lögð til hert viðurlög við brotum gegn lögum um fiskeldi með það fyrir augum að auka varnaðaráhrif þeirra. Það telur nefndin til bóta og til þess fallið að ýta undir bættan rekstur í heild sinni, til góða fyrir atvinnugreinina en ekki síður umhverfið.
Það er rétt að geta þess í lokin að allir fastir fulltrúar í hv. umhverfis- og samgöngunefnd skrifuðu undir álitið og enn fremur er Björn Leví Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, samþykkur þessari umsögn.
Að lokum, herra forseti, langar mig að geta þess að umfjöllun um þessa umsögn var ákaflega lítil utan þings. Sjónarmið veiðiréttarhafa heyrðust a.m.k. einu sinni svo ég viti en ekki nefndarinnar. Það var ekki talað við neinn fulltrúa úr henni né yfir höfuð gripið ofan í umsögnina sjálfa.
Ég legg áherslu á varúðina sem þessi umsögn byggir á og raunhæfar mótvægisaðgerðir, sem sagt eftirlit, hvort sem eru myndavélar eða leit, og að fiskur sem kann að fara í árnar sé fjarlægður þannig að áhættumatið, ásamt þessum aðgerðum, komi í veg fyrir þá erfðablöndun sem við viljum alls ekki sjá. Þetta eru aðferðir, eins og ég segi, sem hafa sannað árangur sinn í a.m.k. einu landi sem mér er kunnugt um.
Ég minni líka á greinaskrif fiskifræðinga sem minna á að með ræktun fisks, þ.e. laxfiska á Íslandi, úr tilteknum ám sem dreift er í aðrar ár þar sem eru laxar fyrir, eða jafnvel engir laxar, er líka ákveðin erfðamengun hugsanleg sem við megum ekki gleyma þegar við erum að fjalla um ástand villtra laxastofna á Íslandi.