fiskeldi.
Virðulegur forseti. Allir vilja gera vel en þegar á hólminn er komið eru sumir sem gera það ekki eða geta það ekki af ýmsum ástæðum, hverjar svo sem þær eru. Það er dálítið okkar hlutverk á þingi að tryggja að eftirlit og umgjörð, t.d. um svona atvinnustarfsemi sem getur vissulega valdið skaða, sé nægilega góð til að koma í veg fyrir að slíkur skaði hljótist yfirleitt af. Við eigum ekki að laga skemmdirnar eftir á heldur reyna að koma í veg fyrir að þær verði.
Það er hægt að gera allt rétt með opið eldi í sjó en það er líka hægt að klúðra því, viljandi eða óviljandi. Það hefur komið vel fram í umsögnum hjá t.d. vísindamönnum að eina leiðin til að tryggja að þetta gerist allt rétt er virkt rauntímaeftirlit, eins og kom fram í áliti umhverfis- og samgöngunefndar sem ég tek heils hugar undir. Það þurfa að vera burðir til mótvægisaðgerða og skýr ábyrgð. Hvort frumvarpið og breytingartillögur meiri hlutans nái öllum þeim markmiðum er ekki alveg svarað að því er ég tel en það kemur í ljós í framkvæmdinni eins og gerist yfirleitt alltaf. Þó eru nokkur atriði sem eru ekki endilega augljós í frumvarpinu eins og er, hvort það sé nægilega skilvirkt þegar á hólminn er komið. Eins og ég sagði áðan vilja allir gera vel en þegar á hólminn er komið tekst það ekki alltaf, alls ekki endilega af því að fólk ætli sér það.
Það er bent á ýmislegt, eins og hefur komið fram í umræðunni, um að áhættumatið sé mögulega ekki nákvæmt en það er nokkuð sem kæmi einmitt í ljós í virku rauntímaeftirliti. Það hafa komið umsagnir um að eftirlitsaðilar séu staðsettir allt of langt frá þeim eftirlitsstöðvum sem þeir þurfa að fylgjast með. Það er augljós óhagkvæmni í því.
Ég legg áherslu á að það er hægt að gera þetta rétt án þess að það valdi umhverfislegum skaða. Það er okkar að tryggja að sú verði raunin og að þegar eitthvað klúðrast séu skýrar mótvægisaðgerðir og ábyrgð sem grípi inn í. Við vitum að slys geta orðið af ýmsum ástæðum en við viljum minnka möguleikana á slysum eins mikið og hægt er og að þegar þau uppgötvast, af því að gæðaeftirlitið sé nægilega mikið, verði t.d. strax vart við göt á netum sem verði þá ekki opin í einhverja daga og allt sleppi í gegn. Að sjálfsögðu vilja ræktendur ekki að slíkt gerist.
Það sem er kannski mikilvægt í þessari umræðu sem hefur verið um fiskeldi á undanförnum árum er að við heyrum aldrei um góðu dæmin. Það eru aðilar sem gera þetta mjög vel og við heyrum ekkert um þá af því að það eru engin vandamál. Við heyrum um vandamálin og að sjálfsögðu viljum við koma í veg fyrir þau.
Mig langar til að tala um tvö atriði sem tengjast þessu máli óbeint, en skipta samt mjög miklu máli í samhengi þessarar atvinnugreinar. Það eru til að byrja með samgöngur, það hafa komið upp atvik þar sem samgöngukerfið okkar er einfaldlega ekki hannað til að bera þann þunga sem verður af þessum iðnaði, t.d. á Vestfjörðum. Þar voru vandamál með flutninga síðasta vetur eða í fyrravor. Það er að sjálfsögðu mjög óheppilegt og er nokkuð sem þarf að spila saman. Samgöngur eru grunnhluti þess að atvinnustarfsemi geti verið blómleg úti um allt land.
Hinn hlutinn er smáframtíðarfræði sem mig langar til að fjalla um í örfáum orðum og tengist þingsályktunartillögu sem ég hef lagt fram. Mögulega verður eftir ekkert svo rosalega mörg ár miklu minni þörf á svona dýrarækt sem fiskeldi er. Það er til tækni til að rækta kjötið án þess rækta allt dýrið. Á næstu árum og áratugum, alls ekki svo mörgum, reiknar fólk með að sú aðferð til kjötframleiðslu að útvega fisk eða annars konar kjöt geti orðið ráðandi og komið í stað þessarar verksmiðjuframleiðslu á dýrum. Mig langar til að hvetja þingið til að huga aðeins að nákvæmlega þessum tækniframförum því að þær munu gerast hraðar en við gerum okkur grein fyrir. Árið 2005 bjóst enginn við snjallsímum árið 2007. Ég held að ég fari rétt með ártölin. Á aðeins einu ári voru snjallsímar komnir um allt. Þegar tækniframfarir nú til dags eru orðnar framleiðsluvænar verða þær almennar á örskotsstundu. Ég gæti jafnvel tekið svo stórt til orða í þessu að ef núverandi styrktarkerfi fjöldaframleiðslu á dýrum væri í sama mæli til kjötræktar værum við þegar komin á þann stað að þurfa ekki fjöldaframleiðslu á dýrum til að standa undir manneldi og að kjötrækt væri þá samkeppnishæf á þeim markaði. Það myndi bæta óhugnanlega mikið náttúrusjónarmiðin því að áhrif fjöldaframleiðslu á dýrum á náttúruna eru rosalega mikil, ekki bara þau augljósu um landnýtingu heldur líka notkun á lyfjum og ónæmi sem verður af þeim í orkuframleiðslu, ýmissi vatnsnotkun og því um líku.
Þetta er ekki enn komið nógu langt. Samt eru til veitingastaðir sem bjóða bara upp á ræktað kjöt, ekki kjöt af dýri sem þurfti að slátra. Það að ímynda sér heim þar sem við þurfum ekki að rækta dýr, þar sem við þurfum ekki að fara út á sjó til að veiða — við getum það og það verður tvímælalaust gert en ekki á sama umhverfisskaðandi hátt og er gert núna. Öll umræða um skaðleg umhverfisáhrif af t.d. fiskeldi verður tilgangslaus af því að það verður ekki þörf á að standa í eldi á þann hátt. Ég hvet þingið og vonandi getur það afgreitt þessa þingsályktunartillögu á næsta þingi. Nú hef ég lagt hana fram á nokkrum þingum en ég hef orðið var við að fólk sé aðeins farið að kveikja á perunni, að þetta sé kannski ekki svo fjarlæg framtíð og að það sé kannski farið að verða dálítið gáfulegt að undirbúa mögulegar tækniframfarir og skoða hvaða áhrif þær hafa á íslenskt hagkerfi eða íslenska matvælaframleiðslu þannig að við séum tilbúin fyrir breytingarnar en að þær gangi ekki yfir okkur án þess að við vitum hvernig á að bregðast við.