149. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2019.

fiskeldi.

647. mál
[17:35]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ég ætla ekki að nýta ræðutíma minn til hins ýtrasta en tel þó nauðsynlegt að koma í ræðustól þingsins til að halda á lofti nokkrum sjónarmiðum. Það er ljóst að með því frumvarpi sem komið er fram og er rætt hér er verið að uppfæra gildandi löggjöf um fiskeldi sem er löngu tímabært. Því er það bót á lagaumhverfi fiskeldis að fá loksins fram þetta frumvarp, enda er megintilgangur þess að styrkja stjórnsýslu og lagaumgjörð fiskeldismála. Þrátt fyrir að því beri að fagna að loks sé verið að festa í lög áhættumat erfðablöndunar á laxi eru líka í frumvarpinu nokkur atriði sem þarf að betrumbæta og gera breytingar á. Það er gott að sjá að meiri hluti atvinnuveganefndar gerir nokkrar nauðsynlegar breytingar á frumvarpinu en að mínu mati hefði þurft að ganga lengra með önnur atriði.

Eins og við vitum er fiskeldi vaxandi atvinnugrein og mun vaxa gríðarlega mikið á komandi árum ef að líkum lætur. Ísland er ekki undanþegið þessari þróun en eldi á frjóum laxi í opnum sjókvíum við strendur Íslands hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum. Í því eldi er notast við norskan lax sem er framandi tegund í íslenskri náttúru. Líkt og í öllum atvinnugreinum verðum við að gera skýrari kröfur til þeirra þegar þær eru vaxandi eins og þessi atvinnugrein sem við ræðum hér og nú. Ekki síst verðum við að gera skýrari og meiri kröfur til atvinnugreina sem nánast einvörðungu hverfast um náttúru og umhverfissjónarmið að mínu mati. Á þann hátt og nánast eingöngu með skýrum kröfum getur fiskeldi á Íslandi skapað sér þá sérstöðu sem er bráðnauðsynleg þegar kemur að því að bjóða upp á gæðavöru sem er vottuð af helstu umhverfisverndarsjónarmiðum við framleiðslu og tekur þá tillit til allra ríkustu krafna þegar kemur að sjálfbærni og náttúruvernd.

Margir hafa lýst miklum áhyggjum af áhrifum erfðablöndunar eldislax við villta nytjastofna og rannsóknir hafa sýnt að slík erfðablöndun hefur neikvæð áhrif á lífsmöguleika villtra laxastofna til að bregðast við breytingum í umhverfinu vegna erfðabreytingar. Ég tek heils hugar undir þær áhyggjur. Og þær áhyggjur eru líka meginþráðurinn í umsögnum náttúru- og umhverfisverndarsamtaka við málið allt. Okkur á þingi ber að hlusta á þessar áhyggjur og taka tillit til þeirra.

Við afgreiðslu atvinnuveganefndar á frumvarpinu hefur meiri hluti nefndarinnar komið sér saman um að bæta frumvarpið, að mínu mati, með bráðnauðsynlegum breytingum sem þurfti að gera. Ég fagna því að meiri hluti atvinnuveganefndar leggi til að skerpa enn frekar skyldur rekstrarleyfishafa um að bregðast við stroki á frjóum laxi úr opnum sjókvíum ásamt því að efla eftirlit og heimildir Matvælastofnunar. Þessar tillögur meiri hluta atvinnuveganefndar eru af hinu góða.

Það er einnig gott að sjá að meiri hluti atvinnuveganefndar leggi til hvata fyrir rekstraraðila til að stunda lokað sjókvíaeldi þó að þeir hvatar hefðu mátt vera mun meiri og sterkari. Það er líka gott að nefndarmeirihlutinn bendi á nauðsyn þess að tryggja stofnunum málaflokksins nægt fjármagn og að lögin eigi að ganga í takt við öra framþróun greinarinnar og vera í stöðugri endurskoðun.

Ég fagna því líka sem fram kemur í minnihlutaáliti atvinnuveganefndar, að sterk náttúruverndarsjónarmið þurfi að vera fyrir hendi þegar kemur að fiskeldi. Þar fagna ég sérstaklega breytingartillögu minni hlutans um fiskeldi á verndarsvæðum á borð við Jökulfirðina, en markmiðið verður að vera skýrt og kannski skýrara en raun ber vitni í góðum og afar nauðsynlegum breytingartillögum frá atvinnuveganefnd, hvort sem um er að ræða frá meiri eða minni hlutanum. Til að koma í veg fyrir sleppingar á frjóum eldislaxi út í náttúruna sem ógnar líffræðilegum fjölbreytileika þegar kemur að fiskeldi verðum við ekki bara að stefna að því að ala frjóan fisk í lokuðum eða hálflokuðum kvíum heldur einfaldlega að stöðva fiskeldi á frjóum fiski í sjókvíum.

Landeldi er málið. Þangað eigum við sannarlega að stefna. Áhættan er of mikil og óvissan of stór fyrir annað. Að því sögðu tel ég þetta frumvarp, og þó sérstaklega breytingartillögur meiri hluta atvinnuveganefndar, til þess fallið að styrkja lagaumgjörðina og koma náttúruverndarsjónarmiðum á framfæri og því mun ég styðja það og breytingartillögurnar en legg um leið mikla áherslu á hvert við eigum að stefna og hvert lokatakmarkið á að vera.