dýrasjúkdómar o.fl.
Herra forseti. Við ræðum málefni dýrasjúkdóma sem í daglegu tali kallast hvort leyfa skuli innflutning á ófrosnu kjöti. Það er kjarnaatriðið í málinu. Það hefur velkst um lengi, á sér langa forsögu og hagsmunirnir eru miklir, en kjarninn í því er sá að hér vilja menn reyna með öllum ráðum að tryggja að hinn heilnæmi og svo til lyfjalausi landbúnaður sem við höfum átt að venjast á Íslandi verði varinn með öllum færum leiðum. Hér ræðum við í samhengi þetta lagafrumvarp og þingsályktunartillögu um mótvægisaðgerðir sem koma til framkvæmda á næstu vikum og mánuðum og í því samhengi höfum við í Miðflokknum verið tilbúnir að ganga býsna langt og teljum að þessar mótvægisaðgerðir séu allar af hinu góða og ættu í sjálfu sér margar hverjar að vera til komnar fyrir löngu. Við verðum að horfa til þess að enn er engin reynsla komin á mjög marga þætti þessarar mótvægisaðgerðar. Sumir þættir eru ekki einu sinni byrjaðir í innleiðingu. Á þeim grundvelli höfum við í Miðflokknum talað fyrir því að það verði að fá fram frestun. Óskastaða okkar væri að lagasetningunni yrði frestað að fullu og málinu vísað frá, en það er ekki hægt að ganga skemmra en að fresta gildistökuákvæðinu um allnokkurn tíma. Það er hlutur sem ég treysti á að verði ræddur í nefnd milli 2. og 3. umr.
Hæstv. forseti. Er búið að óska eftir því að málið gangi til nefndar á milli umræðna?
(Forseti (BN): Forseta er ekki kunnugt um það.)
Nei. Það dugar væntanlega ekki að ég óski eftir því þar sem ég er ekki í nefndinni en mig grunar að einhver nefndarmanna muni óska eftir því ef sú ósk hefur ekki komið fram nú þegar.
Eins og ég sagði áðan er hvað varnirnar varðar þessi 18 atriða aðgerðaáætlun góð eins langt og hún nær en við viljum sjá koma reynslu á þær mótvægisaðgerðir. Hagsmunirnir sem eru undir eru einfaldlega slíkir að það verður ekki svo snúið aftur ef okkur verður á í messunni. Það kæmi mér á óvart ef hingað kæmu fulltrúar stjórnarflokkanna hver á fætur öðrum sannfærðir um að búið væri að ramma þetta þannig inn að það gæti ekki klikkað. Ég er hræddur um að við séum ekki á þeim stað. Ég gef mér að einhver nefndarmanna muni óska eftir því að málið gangi til nefndar í ræðu á eftir mér og þess vegna vona ég að við berum gæfu til að annaðhvort fresta málinu eða fresta gildistökuákvæðinu þannig að tími vinnist til að sjá þessa aðgerðaáætlun virka og síðan aftur að tryggja að einhver leið finnist til þess að bakka alveg með málin hafi menn kjark til að fara þá leið.
Ég ætla ekki að segja fleira í bili en gæti komið upp aftur í þessari umræðu með nokkur atriði til viðbótar.