149. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2019.

dýrasjúkdómar o.fl.

766. mál
[17:47]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Ástkær forseti, boðberi vonar. Það er tilefni til að ræða heilmikið um þetta gríðarlega stóra hagsmunamál sem nú er komið á dagskrá við lok þingstarfa. Ég hafði séð fyrir mér að það kallaði á umræðu upp á a.m.k. tugi klukkustunda, hugsanlega eitthvað á annað hundraðið, en eins og hæstv. forseti veit er ég allur af vilja gerður að greiða fyrir þingstörfum. Nú liggur fyrir samkomulag um hvernig þingstörfum verði háttað þar sem þetta mál kemur við sögu og gert ráð fyrir að frestun verði á gildistöku og tíminn nýttur til að meta annars vegar hvort þær mótvægisaðgerðir sem boðaðar hafa verið geti skilað tilætluðum árangri en einnig, eins og hv. þm. Bergþór Ólason nefndi í ræðu á undan mér, að meta hvort aðrar leiðir kunni að vera færar, sem ég er sannfærður um að sé raunin.

Þetta er búið að vera mikið vandræðamál hjá ríkisstjórninni en hún hefur stillt því þannig upp að í rauninni sé ekki annað í stöðunni en að samþykkja það vegna þess að með því sé verið að bregðast við dómum sem a.m.k. Stefán Már Stefánsson lögmaður hefur lýst sem röngum, þ.e. að menn hafi komist að rangri niðurstöðu um þetta mál, enda hafi landbúnaðar- og sjávarútvegsmál átt að vera utan EES-samningsins þegar hann var gerður. Við Íslendingar töldum okkur hafa skýra fyrirvara hvað þessi tilteknu mál varðar, þ.e. innflutning á hráu, ófrosnu kjöti og ógerilsneyddum matvælum.

Í rauninni er ekki hægt annað, herra forseti, en að setja þetta í samhengi við umræðuna um þriðja orkupakkann í ljósi þess hversu mikil áhersla hefur verið lögð á það af hálfu ríkisstjórnarinnar að fyrirvararnir, séu þeir einhvers staðar til, séu til þess fallnir að draga úr áhyggjum af samþykkt þess máls, enda sjáum við í því máli sem við ræðum núna hversu varhugavert það getur verið fyrir stjórnvöld að telja sig hafa fyrirvara gagnvart Evrópusambandinu, gagnvart ESA, án þess að það liggi með þeim mun skýrari hætti.

Í þessu máli þar sem það var afstaða íslenskra stjórnvalda að ekki aðeins væru fyrirvararnir skýrir heldur væru þessi mál utan gildissviðs EES-samningsins er okkur nú sagt að við verðum að samþykkja það vegna þess að Evrópusambandið og ESA ætlist til þess. Ég er þeirrar skoðunar, herra forseti, að sú sé ekki raunin. Nú gefst tækifæri og aukið svigrúm til að skoða möguleika okkar í því sambandi. Ég vona að stjórnvöld muni nýta tímann vel og gæta samráðs við hagsmunaaðila. Þeir hagsmunaaðilar eru auðvitað íslenskir matvælaframleiðendur, ein af undirstöðuatvinnugreinum landsins frá landnámi.

Það er oft og tíðum mjög undarlegt að fylgjast með því hvernig menn leyfa sér að tala um íslenskan landbúnað og þau lög og þær reglur sem gilda til að tryggja annars vegar heilnæmi íslenskrar matvælaframleiðslu og gæði og hins vegar atvinnugreinina sem slíka sem stendur ekki aðeins undir sjálfri sér heldur er undirstaða byggðar hringinn í kringum landið. Þegar svo mikið er undir skyldi maður ætla að menn leituðu allra ráða til að verja greinina. Hins vegar hefur allt of mikið borið á því að menn hafa beinlínis sett út á það að gerðar væru tilraunir til að standa vörð um íslenska matvælaframleiðslu og talið það á einhvern hátt óeðlilegt eða í andstöðu við réttindi neytenda sem mun vera ein algengasta línan frá þeim sem eru helst mótdrægir íslenskum landbúnaði.

Auðvitað er því ekki þannig háttað, auðvitað er stuðningur við íslenska matvælaframleiðslu um leið stuðningur við neytendur. Mér er til efs að nokkur þjóð, a.m.k. nokkur siðmenntuð þjóð, nokkur vestræn þjóð, telji óþarft að standa sérstaklega vörð um matvælaframleiðslu sína. Og þetta er alveg sérstaklega mikilvægt á Íslandi í ljósi þeirrar sérstöðu sem landið hefur sem og matvælaframleiðsla okkar eftir að hafa þróast hér í meira en 1100 ár án tengingar við ýmsa þá sjúkdóma og aðra óværu sem herjar á landbúnað víða um lönd og eftir að hafa varðveitt það fyrirkomulag sem hefur ríkt í íslenskum landbúnaði frá upphafi, þ.e. fjölskyldubúin. Það að ætlast til þess að íslensk fjölskyldubú uppfylli allar ströngustu kröfur sem menn geta látið sér til hugar koma varðandi framleiðslu en keppi um leið við verksmiðjubú í útlöndum sem uppfylla ekki sömu kröfur, eru með verkafólk við vinnu á kjörum sem þættu óboðleg hér á Íslandi, er óforsvaranlegt, herra forseti. Við getum ekki ætlast til þess af þessari grein, einni greina, að hún keppi við niðurgreiddan landbúnað erlendis, landbúnað sem í mörgum tilvikum starfar eftir allt öðrum reglum og við allt aðrar aðstæður en við teljum boðlegar hér á Íslandi.

Þá bera menn fyrir sig dóma og afstöðu ESA og Evrópusambandsins og það að íslensk stjórnvöld skuli hafa verið dæmd til að greiða yfir 3 milljarða kr. í bætur til heildsala vegna tækifæranna sem þeir hafi misst af vegna þess að við höfum ekki opnað á óheftan innflutning þeirra matvæla sem hér eru undir. Þá bendi ég á það að ef tjón þeirra nemur a.m.k. 3 milljörðum segir það okkur einfaldlega að þetta er það sem ætlast var til að tekið yrði af íslenskum bændum, íslenskum matvælaframleiðendum, á því tímabili sem um ræðir. Þetta er það sem EES-samningurinn, eins og ESA og Evrópusambandið kjósa að túlka hann, átti að hafa tekið af íslenskum bændum á ekki lengri tíma en raun ber vitni.

Það hlýtur að vera til þess fallið að vekja spurningar og leiða hugann að því hvað verið er að innleiða hér og um leið mikilvægi þess að standa vörð um þessa atvinnugrein en láta ekki viðgangast að milljarðar á milljarða ofan til framtíðar, ár eftir ár, verði teknir af þeim sem vinna við matvælaframleiðslu á Íslandi og færðir til innflutningsaðila eða annarra sem selja innflutt matvæli.

Þessi dómur og þessar skaðabætur eru fyrst og fremst áminning um að við megum ekki gefa eftir þá hagsmuni sem samfélagið allt hefur af því að standa vörð um íslenskan landbúnað. Þetta setur hlutina í ákveðið samhengi, sýnir okkur að þetta eru raunverulegar stærðir og raunverulegt fjármagn. Þetta er spurning um afkomu fjölskyldnanna sem hafa atvinnu af því að framleiða matvæli hringinn í kringum landið, en ekki bara það heldur auðvitað spurning um afkomu byggðanna þar sem landbúnaður er undirstaða byggðar um allt land.

Því ítreka ég þá ósk mína, herra forseti, að þótt við fáum ekki mikinn tíma til að ræða þetta mál núna verði tíminn sem gefst nýttur til að styrkja varnir okkar gagnvart ásælni Evrópusambandsins, ESA og heildsalanna gagnvart undirstöðuatvinnugrein landsins og ég vona að sem flestir flokkar á þingi muni forgangsraða málum og taka afstöðu þannig að þeir styðji íslenska matvælaframleiðendur, íslenska bændur, og um leið þá auðvitað íslenska neytendur, byggðirnar í landinu og samfélagið allt. Það er ekki hægt að tala um undirstöðuatvinnugreinar ef landbúnaður telst ekki til undirstöðuatvinnugreina á Íslandi. Þá eru þær ekki til.

Ég læt þetta nægja í bili, herra forseti. Ég var búinn að lofa að tala ekki of lengi. Ég hefði gjarnan viljað ræða þessi mál miklu lengur og fara tæknilegar ofan í þau en tími gefst til núna en ég ætla að enda mál mitt á því að ítreka hvatningu mína til þingheims um að tíminn sem nú gefst verði nýttur til að styrkja varnirnar og standa með íslenskum landbúnaði.