149. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2019.

dýrasjúkdómar o.fl.

766. mál
[17:59]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka síðasta ræðumanni, hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, fyrir afar góða ræðu og þá hvatningu til þingheims að standa með íslenskum landbúnaði. Það veitir svo sannarlega ekki af vegna þess að það hefur verið sótt að íslenskum landbúnaði sem aldrei fyrr í tíð þessarar ríkisstjórnar sem er ákaflega dapurlegt í ljósi þess að sú atvinnugrein er gríðarlega mikilvæg í okkar samfélagi, mikilvæg matvælaöryggi í landinu og þeim fjölmörgu fjölskyldum sem starfa við landbúnað og framleiða þessa frábæru, hreinu vöru.

Eins og hefur komið fram ræðum við frumvarp sem er viðbragð stjórnvalda við dómi EFTA-dómstólsins og Hæstaréttar Íslands þess efnis að íslenska leyfisveitingakerfið fyrir innflutning á hrárri og unninni kjötvöru, eggjum og mjólk samrýmist ekki ákvæðum EES-samningsins. Þetta er stórmál, herra forseti. Verði það að lögum, sem allt stefnir í er það náttúrlega sorgardagur í sögu íslensks landbúnaðar og getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir búfjárstofna okkar og þar með okkar hreina landbúnað, auk þess sem málið varðar lýðheilsu landsmanna eins og komið hefur fram.

Forsaga málsins lýtur að matvælalöggjöf Evrópusambandsins sem var tekin upp í EES-samninginn árið 2007. Eins og hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson nefndi var aldrei lagt upp með það að landbúnaðarmál yrði inni í EES-samningnum en það er nú orðin raunin sem sýnir hversu miklum breytingum þessi samningur hefur tekið á þeim 25 árum sem hann hefur verið við lýði. Ég tel, herra forseti, að í aðdraganda þessa máls hafi stjórnvöld sofið á verðinum. Þau hefðu átt að halda sérstöðu okkar kröftuglega á lofti.

Bændasamtökin hafa ályktað á þann veg að frumvarpið sé fullkomin uppgjöf af hálfu ríkisstjórnarinnar og skal tekið undir það hér. Ég legg áherslu á að við hefðum átt að halda uppi betri hagsmunagæslu. Ríkisstjórnin hefði átt að halda uppi öflugri hagsmunagæslu fyrir íslenskan landbúnað á fyrri stigum þessa máls.

Ég spurði hæstv. utanríkisráðherra hvort hann hefði beitt sér pólitískt í málinu á vettvangi Evrópusambandsins og svar hans var á þann veg að hann hefði hringt í utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Ég verð að segja, herra forseti, að fyrir litla eyþjóð eins og Ísland eru hagsmunir málsins miklu stærri en svo að eitt símtal dugi til og hlýt ég að telja það fremur slaka hagsmunagæslu. Einnig spurði ég ráðherra hvort málið hefði verið tekið upp í sameiginlegu EES-nefndinni en þar skal ræða deilumál sem geta komið upp við framkvæmd samningsins. Ráðherrann svaraði spurningunni ekki enda veit hann sem er að málið hefur ekki verið rætt á vettvangi nefndarinnar og verður það að teljast einkennilegt. Af hálfu Evrópusambandsins er málið rekið af öflugustu hagsmunaklíkunni innan Evrópusambandsins, embættismönnum landbúnaðarmála Evrópusambandsins.

Ríkisstjórnin verður að og hefði átt að setja allt sitt pólitíska vægi í málið og auðvitað hefði forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, átt að funda strax í upphafi með Jean-Claude Juncker, framkvæmdastjóra Evrópusambandsins, og óska eftir því að sérstaða Íslands yrði viðurkennd. Annað er uppgjöf.

Ég vek athygli á því að í skýrslu utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál sem rædd var fyrr á þessu þingi ræðir ráðherra um hagsmunagæsluna á vettvangi EES og hann getur þess að það hafi verið eitt af forgangsmálum hans í utanríkisráðuneytinu sem er svo sem ágætt. Svo segir á bls. 7, með leyfi forseta:

„Í þessu sambandi er mikilvægt að hafa hugfast að þessi mikli ávinningur hefur fengist án þess að Ísland hafi þurft að fórna sínum hagsmunum svo nokkru nemi.“

Herra forseti. Ég ætla að mótmæla þessari setningu í skýrslu utanríkisráðherra. Við sjáum að íslenskur landbúnaður fórnar gríðarlegum hagsmunum með þessum lögum ef frumvarpið verður að lögum þannig að ég er mjög hissa á að þessi klausa skuli hafa verið sett inn í skýrsluna. Í raun er verið að gera lítið úr íslenskum landbúnaði hvað þetta varðar.

Ég held að það sé rétt að halda þessu til haga, herra forseti, og ég árétta hér sérstaklega.

Það var rætt um að við mættum ekki tala lengi hér, það er víst eitthvert samkomulag sem hangir á spýtunni hvað önnur málefni varðar, þannig að ég vil bara að lokum gera samanburð á þessu máli og landhelgisdeilunni við Breta á sínum tíma. Þar lögðum við fram veigamikil gögn sem studdu okkar málstað, gögn eins og skýrslu Hafrannsóknastofnunar um ofveiði. Rökin voru okkar megin og við náðum að lokum sigri gegn heimsveldi.

Hið sama á við í þessu máli. Sérstaða okkar er ótvíræð, íslenskir búfjárstofnar hafa verið einangraðir um aldir og hafa aldrei komist í snertingu við smitefni margra búfjárstofna sem eru landlægir í Evrópu og víðar. Rökin eru okkar megin, herra forseti. Hagnýting náttúruauðlinda í landbúnaði byggist á þekkingu, rétt eins og hagnýting náttúruauðlinda í sjávarútvegi.

Ólafur heitinn Jóhannesson, fyrrverandi forsætisráðherra, sagði í landhelgismálinu að samkomulag væri útilokað nema litið yrði með fyllstu sanngirni á aðstæður okkar.

Þessi orð eiga svo sannarlega við í þessu máli, herra forseti. Það hefði átt að líta af fyllstu sanngirni á okkar sérstöðu hvað íslenskan landbúnað varðar og þar hafa stjórnvöld því miður brugðist í að koma þessari sérstöðu okkar á framfæri með veigamiklum hætti. Það hefði átt að gerast og það var því miður ekki gert. Þess vegna erum við komin í vegferð sem veldur miklum áhyggjum um þróunina. Ég vil árétta í lokin að ég spurði hæstv. landbúnaðarráðherra hver bæri ábyrgðina ef hingað bærust búfjárstofnar sem geta valdið ómældu tjóni. Svar hæstv. landbúnaðarráðherra var á þann veg að þá væri ríkissjóður skaðabótaskyldur. Það er rétt að það komi fram úr þessum ræðustól.

Við vonum að sjálfsögðu að svo verði ekki en ég hef miklar áhyggjur af þessu máli.