fiskeldi.
Herra forseti. Hér er að ljúka atkvæðagreiðslu um tillögu minni hluta varðandi hvernig eigi að fara með umsóknir um rekstrarleyfi á sjókvíaeldi á svæðum sem hafa verið metin til burðarþols. Ég veit ekki hvort þingheimur gerir sér almennt grein fyrir því að þau svæði sem hafa verið metin til burðarþols eru í raun meiri hluti, alla vega stór hluti, svæða á landinu. Það á eftir að ræða þetta ítarlegar þar sem meiri hlutinn hefur dregið sína tillögu til baka hvað þetta varðar. En ég held að sú leið sem við leggjum til í minni hlutanum sé góð og hvet þingheim til að skipta um skoðun og styðja hana.